Stofna sjóð til að styrkja grasrótarstarf í nýsköpun

Frumkvöðlar hafa fengið fyrirtæki og einstaklinga með sér til að efla grasrótar­starf í nýsköpun á Íslandi.

Sprota- og tækni­vefurinn Northstack ásamt Kristjáni Inga Mikaels­syni hafa stofnað nýjan tveggja milljón króna sjóð til að styrkja viðburði og fjármagna samveru­stundir fólks í tækni­geiranum. Mikilvægt er að skapa vettvang þar sem tækni­spekúlantar landsins geta komið saman og miðlað af reynslu sinni.

„Erlendis tíðkast svonefnd meetup, þar sem fólk úr tækni­geiranum hittist og deilir reynslu og sögum af nýrri tækni og miðlar þekkingu. Svona viðburðir stuðla að mikilli grósku í tækni­geiranum,” segir Kristján Ingi Mikaelsson, í tilkynningu. Hann tekur fram að slíkir viðburðir tíðkist einnig á Íslandi, en markmiðið með sjóðnum er að fjölga þeim enn frekar og auðveld það að búa til ný.

Northstack.is er sérhæfður miðill um málefni sprota- og tækni­geirans á Íslandi, og hefur orðspor hans vaxið jafnt og þétt samhliða vönduðum efnis­tökum.

Kristján Ingi er einn stofnenda sprota­fyrir­tækisins Watchbox. Hann hefur síðastliðin ár látið gott af sér leiða við uppbyggingu tækni­samfélagsins á Íslandi, og kom meðal annars á fót JavaScript samfélaginu á Íslandi, og leiddi skipulagningu alþjóð­legu tækni­ráðstefnunnar JSConf árið 2016.

Northstack var stofnaður 2015 og hefur síðan þá fjallað um og greint stöðu mála í geiranum, stuðlað að viðburðum og samfélags­tengingum og tekið þátt í alþjóð­legum verkefnum á þessu sviði. 

Sjóðurinn nýtur stuðnings Samtaka upplýsinga­tækni­fyrirtækja (SUT), Tempo, Investa, Frumtak Ventures og Kaptio. „Það er mikið af fólki með drifkraft til að búa til fullt af góðum hlutum, en stundum vantar smá pening til láta hlutina verða að veruleika. Þar kemur Community Fund inn,” segir Kristján Ingi.

Við undir­búning og stofnun sjóðsins nutu stofn­endur sjóðsins liðsinnis fyrir­tækja og samtaka sem hafa mikla hagsmuni af virku grasrótar­starfi. Fyrir­tækin lögðu saman til stofnfé sjóðsins, sem er tvær milljónir, og er ætlunin að veita þeim pening til góðra verka á næstu tólf mánuðum. „Ef þetta gengur vel og hefur tilætluð áhrif, þá reynum við að safna í sjóðinn aftur fyrir næsta ár á eftir,” segir Kristján.

Úthlutunar­nefnd sjóðsins er ásamt þeim Kristjáni Inga og Guðbjörgu Rist hjá Northstack skipuð reynslu­boltum úr bransanum, Hjálmari Gíslasyni frá Investa, sem jafnframt er stjórnar­formaður Kjarnans, Arndísi Ósk Jóns­dóttur, CHRO hjá Tempo og Vigni Erni Guðmunds­syni, sérfræðingi hjá SUT. „Hugmyndin kviknaði hjá okkur, eftir að hafa verið lengi í því hlutverki að búa til grasrótar­samfélög í kringum ýmsa tækni. Þar má helst líta til Javascript forritara­samfélagsins sem Kristján hefur verið mikill drif­kraftur í. Oft vantaði smá pening til að láta hluti gerast, og það sem tók mestan tíma var að redda þessum pening. Við sáum fram á að með svona sjóði væri hægt að styðja við vöxt og þróun tækni­geirans,” segir Kristinn Árni.

Allar upplýsingar um sjóðinn og umsóknar­eyðublað eru á vefnum communityfund.co. „Við svörum öllum, og reynum að svara mjög hratt. Sjóðurinn er með einfalt umsóknar­ferli, mjög litla yfir­byggingu og allir geta sótt um sem vilja,” segir Kristján að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár