Danski herinn orðinn fornbílaklúbbur

Þessa fyrirsögn, reyndar með spurninga­merki fyrir aftan, mátti lesa í einu dönsku dagblað­anna fyrr í vikunni. Þegar betur var að gáð kom í ljós að viðkomandi blaða­maður hafði tekið sér skálda­leyfi en eigi að síður leynist í orðum hans nokkur sann­leikur. Skrif hans fjalla semsé um, bíla hersins, einkum þá brynvörðu (líkjast skrið­drekum) og marga hefur líklega rekið í rogastans við lesturinn.

Þótt ýmsa hafi kannski grunað að tækja­búnaður hersins, sér í lagi bíla­flotinn væri ekki í topplagi, eins og sagt er, hafa fæstir sennilega gert sér grein fyrir að hann væri, að stærstum hluta, kominn á fornbíla­aldurinn.

Eldgamalt dót


Bryn­varðir bílar hers­ins, kall­aðir PMV, eru frá sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar, skrið­drek­arnir frá 1965 og flutn­ing­bíl­arnir frá árunum í kringum 1990. Herinn á sam­tals 65 PMV bíla, þeir eru nán­ast ónot­hæfir, ein­ungis 5 eru nokkurn veg­inn öku­færir. Það er ekki bara ald­ur­inn sem er ástæðan. Á bíl­ana hefur verið sett bryn­vörn marg­falt meiri og þyngri en áður tíðk­að­ist, og annar bún­aður sömu­leiðis, og þeir hreint ekki byggðir fyrir þennan mikla þunga. Afleið­ingin er sú að í bíl­unum bilar allt sem bilað getur.

Í hernaði er ekki reiknað með dvöl á verkstæði en ástandið á bílaflota danska hersins er þannig að mestan hluta tímans eru bílarnir á viðgerðar­verkstæðum og geta svo kannski aðeins keyrt nokkur hundruð metra áður en eitthvað annað gefur sig og þá er aftur komið til kasta viðgerðar­mannanna.

Ekki er ástandið betra á skriðdreka­flota hersins. Skrið­drekarnir, Haubits M109, eru frá árinu 1965 og af 24 slíkum sem herinn ræður yfir eru aðeins 6 gangfærir, hinir 18 standa í skemmum hersins og verða ekki notaðir til annars en í varahluti. Þar að auki eru byssurnar á þessum sex drekum svo gamaldags og úr sér gegnar að þær eru nánast ónothæfar. Miðunar­búnaðurinn er ekki nákvæmari en svo að mjög ólíklegt er að kúla hæfi það sem miðað er á, getur skeikað allt að 150 metrum á lengdina og öðru eins til hliðar.

Skrið­dreki af gerðinni Haubits M109. Mynd: Wikimedia Commons

Skriðdreki af gerðinni Haubits M109. Mynd: Wikimedia Commons
Skrið­dreki af gerð­inni Haubits M109. Mynd: Wikimedia Commons

Herinn á ennfremur nokkra brynvarða bíla af gerðinni Leopard. Þeir eru líka komnir til ára sinna en teljast þó nothæfir. Á heræfingu sem haldin var í Póllandi fyrir nokkru biluðu nær allir Leopard bílarnir. Flestir „venju­legir“ bílar danska hersins eru líka áratuga gamlir og þótt þeir séu nothæfir er viðhalds­kostnaðurinn mikill.

Hefur orðið að treysta á aðra


Á und­an­förnum árum hefur tals­verður fjöldi danskra her­manna verið í Írak og Afganistan. Í báðum þessum löndum hefur her­inn orðið að treysta á aðstoð ann­arra, einkum Banda­ríkja­manna og Breta. Í við­tali við Jót­land­s­póst­inn fyrir nokkrum dögum sagði einn af yfir­mönnum hers­ins að það væri ekki æski­legt fyrir her­inn að vera svona upp á aðra kom­inn en í áður­nefndum tveim löndum hefði ekki verið um annað að ræða.

Stjórnmálamennirnir hafa ekki hlustað


Yfirmenn hers­ins eru ekki fúsir að tjá sig mikið um ástandið og enn ófús­ari að benda á söku­dólga. Þeir hafa sagt rík­is­stjórn lands­ins verði að taka allar ákvarð­anir um meiri háttar end­ur­nýjun tækja­bún­aðar hers­ins og um ára­bil hafi slík mál ekki haft for­gang. Yfir­stjórn hers­ins lagði í apríl til við rík­is­stjórn Helle Thorning-Schmidt að keyptur yrði tækja­bún­aður fyrir um einn millj­arð króna (tutt­ugu millj­arða íslenska) en ákvörð­un­inni var slegið á frest.

Carl Holst varnarmála­ráðherra sagði í viðtali fyrr í vikunni að öllum sé ljóst að ástandið sé óviðunandi en gert sé ráð fyrir háum fjár­veitingum til tækja­kaupa hersins á næstunni. Næsta skref sé að velja búnaðinn. Ráðherrann sagði að yfir­stjórn hersins væri tilbúin með ákveðnar tillögur í þeim efnum og þar sé gert ráð fyrir að ökutækja­floti hersins verði algjör­lega endurnýjaður á næstu árum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár