Ófærð var seld til Bandaríkjanna fyrir 1,2 milljónir dala

Íslenska sjónvarps­þátta­serían Ófærð var seld til Banda­ríkjanna fyrir 1,2 milljónir Bandaríkja­dala á dögunum, eða jafnvirði 153 milljóna. Baltasar Kormákur, einn leik­stjóri þáttanna, greindi frá þessu í umræðunum Er íslensk kvik­myndagerð góð fjár­festing? sem eru haldnar í tilefni af kvikmynda­hátíðinni RIFF.

Ófærð er dýrasta íslenska sjónvarpsþáttaröð sem hefur verið framleidd og verður sýnd á RÚV í kringum jólin. Fyrstu tveir þættirnir verða loka­myndin á RIFF í ár. Þátta­röðin var seld til The Weinstein Company fyrr í september, en þetta er í fyrsta sinn sem íslensk þáttaröð er seld til Banda­ríkjanna. Hún hefur einnig verið seld til sjónvarps­stöðva víða í Evrópu. Kostnaður við verkefnið nemur um milljarði króna.

Það er íslenska útgáfan af þáttunum sem hefur nú verið seld til Banda­ríkjanna fyrir þessa upphæð, segir Baltasar. Endurgerð þáttanna sé allt önnur ella og verði gerð síðar. „Þetta er að breytast rosalega. Allt í einu er þetta vandamál með tungu­málið að verða minna,“ sagði Baltasar í umræðunum í dag. Hann sagði að fyrir nokkrum árum hefði það verið óhugsandi að selja þáttaröð á íslensku á bandaríkja­markað. „Það eru að opnast fullt af dyrum.“

Baltasar tók sem dæmi vinsæla danska þætti sem hafi verið seldir til annarra landa, og uppruna­legu þættirnir voru vinsælli í Bretlandi en endur­gerðin.

Baltasar sagðist oft hafa lent í miklum vandræðum með íslenska banka­kerfið, meðal annars í gerð á Ófærð, þótt þættirnir hafi notið ýmissa styrkja. Það hafi vantað pening á meðan á framleiðslu­ferlinu stóð, styrkir og önnur fjár­mögnun komi inn þegar verkinu sé skilað. „Það er svo lítil þekking inni í banka­kerfinu og fjármála­kerfinu,“ sagði hann. Það sé svo mikið fjallað um fjárhags­legu vanda­málin en ekki um það sem gangi vel. Á endanum hafi Gamma stigið inn í verkefnið með 500 milljónir króna. „Þeir eru að græða á þessu,“ sagði Baltasar. Á endanum hafi því tekist að fjármagna verkefnið upp á tæpan milljarð.

Umræðurnar eru enn í gangi og horfa má á þær hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár