Þingmenn gagnrýna fjarveru ráðherra – Forseta ekki kunnugt um að „mannfall hefði orðið í ráðherraliðinu“

„Þarf ekki bara að fækka ráð­herrum og þá koma fleiri ráð­herrar aftur?“ spurði einn þing­maður þegar fjar­vera ráð­herr­anna var rædd á Alþingi í dag.

Birgir Ármannsson forseti Alþingis.
Birgir Ármanns­son for­seti Alþingis. Mynd: Bára Huld Beck

Nokkrir þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar gagn­rýndu undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag að ein­ungis tveir ráð­herrar verða til svara á morgun í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem þing­menn gagn­rýna ráð­herra­liðið fyrir slíkt en stjórn­ar­and­staðan var harð­orð í garð þess í jan­úar síð­ast­liðnum.

Helga Vala Helga­dóttir þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar hóf umræð­una og benti á að í þing­skap­a­lögum segði að í allt að hálf­tíma á fyr­ir­fram ákveðnum þing­fundum að jafn­aði tvisvar í hverri starfsviku, gæti for­seti heim­ilað þing­mönnum að bera fram munn­legar fyr­ir­spurnir til ráð­herra án nokk­urs fyr­ir­vara. For­sæt­is­ráð­herra skyldi fyrir klukkan 12 á hádegi und­an­far­andi föstu­dag til­kynna for­seta hvaða ráð­herrar að jafn­aði, eigi færri en þrír, yrðu til svara á þing­fundum í næstu viku.

„Við höfum áður rætt fjar­veru ráð­herra hér í þing­sal, en nú ber svo við að það eru heims­sögu­legir við­burðir í gangi sem varða alla íbúa jarð­ar­innar, en líka á marg­vís­legan hátt almenn­ing á Íslandi. Á morgun háttar svo til að ein­ungis tveir af 12 ráð­herrum í rík­is­stjórn Íslands treysta sér til að mæta hér við óund­ir­bú­inn fyr­ir­spurna­tíma. Það sætir furðu á slíkum tímum að ekki skuli fleiri treysta sér til að koma hingað og svara þing­mönnum og spurn­ingum þeirra,“ sagði hún.

Birgir Ármanns­son for­seti Alþingis svar­aði og sagði að honum væri reyndar ekki kunn­ugt um að slíkt mann­fall hefði orðið í ráð­herra­lið­inu varð­andi morg­un­dag­inn en hann myndi hins vegar taka það til athug­unar hvort hægt væri að bæta úr þessu þannig að það yrðu ekki færri en þrír til and­svara á morgun.

„Með mikilvægustu dagskrárliðum hér í þessum þingsal“

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata þakk­aði Helgu Völu fyrir að vekja athygli á þessu og fyrir að vekja athygli for­seta á þessu, sem virt­ist hafa tekið vel í þessa beiðni og væri það vel.

„Ég vil hins vegar árétta að mögu­lega er líka til­efni til þess að auka tæki­færi stjórn­ar­and­stöðu­þing­manna til að fara í óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir. Þessar reglur voru settar upp þegar það voru tals­vert færri flokkar á þingi en núna. Og raunar mætti alveg íhuga að fjölga þeim fyr­ir­spurnum sem mega koma fyrir ráð­herra vegna þess að það er vissu­lega að mörgu að spyrja og að mörgu að huga.

Þessi dag­skrár­liður er með mik­il­væg­ustu dag­skrár­liðum hér í þessum þing­sal þar sem stjórn­ar­and­staðan sér­stak­lega, og jú, stundum stjórn­ar­liðar, fá tæki­færi til að veita fram­kvæmd­ar­vald­inu virkt aðhald í störfum sínum. Þar af leið­andi beini ég því líka til for­seta að íhuga hvort ekki megi auka við óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir og tryggja betri mönnun en þrjá ráð­herra af 12,“ sagði hún.

Forseti segir að forsætisráðherra hafi ekki brugðist illa við

Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata steig næst í pontu undir sama lið og sagði að þessi umræða væri end­ur­tekið efni.

„Ég fletti því upp og 20. jan­úar áttum við sam­bæri­legt sam­tal við for­seta vegna þess að aðeins tveir ráð­herrar höfðu boðað sig í óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir dag­inn eftir. Þá bar svo við að for­seti hafði orðið þess áskynja áður og farið þess á leit við Stjórn­ar­ráðið að manna dag­skrár­lið­inn betur en hafði fengið nei frá for­sæt­is­ráð­herra. Ég ætla bara að segja það sama og ég sagði 20. jan­úar, að við í stjórn­ar­and­stöð­unni, örugg­lega öll sem eitt, stöndum með for­seta í að fá ráð­herra til að mæta hér í þing­sal til að svara spurn­ingum þing­manna eins og þeim ber að gera og ef for­sæt­is­ráð­herra bregst jafn illa við beiðni for­seta í þetta skiptið og hún gerði 20. jan­úar þá stöndum við með for­seta og Alþingi.“

Birgir svar­aði í annað sinn og sagð­ist vilja geta þess að hann liti ekki svo á að for­sæt­is­ráð­herra hefði brugð­ist illa við þeirri mála­leitan sem átti sér stað 20. jan­úar síð­ast­lið­inn „en aðstæður voru með þeim hætti að ekki var hægt að verða við þrýst­ingi af hálfu for­seta um að fjölga ráð­herrum í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum. Á því er nokkur munur.“

Á sama tíma og ráðherrum hefur fjölgað þá fækkar þeim sem vilja koma

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son þing­flokks­for­maður Flokks fólks­ins tók undir með þeim sem á undan höfðu komið.

„Ég kom hingað upp síð­ast líka. Ég held að þetta sé bara því að kenna að skamm­tíma­minni rík­is­stjórn­ar­innar er svona lítið, það er svo stutt síðan þetta var síð­ast. En kannski er aðal­at­riðið það að á sama tíma og ráð­herrum hefur fjölgað þá fækkar þeim sem vilja koma. Þarf ekki bara að fækka ráð­herrum og þá koma fleiri ráð­herrar aftur?“ spurði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár