Einungis tveir ráðherrar til svara á þingi – Vonbrigði, óforskammað og óásættanlegt

Stjórn­ar­and­staðan var ekki sátt við ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar á Alþingi í morgun en tveir ráð­herrar af tólf voru til svara í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma. „Þetta minnir mig á það and­rúms­loft sem var hér fyrir hrun þegar ráð­herraræðið var algjört.“

Þingmenn fjög­urra stjórn­ar­and­stöðu­flokka voru harð­orðir í garð ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar þegar ein­ungis tveir mættu í óund­ir­bú­inn fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í morgun, þau Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir vís­inda-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra.

Fjöl­margir þing­menn lögðu orð í belg og gerðu athuga­semdir við fund­ar­stjórn for­seta Alþingis Birgis Ármanns­sonar.

Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir þing­maður Pírata var meðal þeirra stjórn­ar­and­stöðu­þing­manna sem gagn­rýndi fjar­veru ráð­herr­anna og sagði að mögu­leikar þing­manna til að beina óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum til ráð­herra væri gríð­ar­lega mik­il­vægur þáttur í aðhaldi þings­ins að fram­kvæmd­ar­vald­inu og upp­lýs­inga­gjöf stjórn­valda til þings­ins.

Lýsti yfir miklum vonbrigðum

„Kveðið er á um þetta í lögum um þing­sköp Alþingis þar sem segir að að jafn­aði skuli ekki vera færri en þrír ráð­herrar sem sitja fyrir svörum. Í dag eru ein­ungis tveir mættir. Það vekur sér­stak­lega athygli vegna þess hversu margir ráð­herrar eru orðnir. Þessi rík­is­stjórn hefur séð ástæðu til að fjölga ráð­herrum en greini­lega ekki í þeim til­gangi að auka fyr­ir­svar þeirra gagn­vart þing­inu.

Ég lýsi því yfir miklum von­brigðum með að hér í dag skuli ein­ungis mæta tveir ráð­herrar og það væri raunar ágætt að fá frek­ari skýr­ingar á því en bara þá að það hafi ekki náðst. Það er hægt að sýna ýmsum hlutum skiln­ing en þegar af svo mörgum ein­stak­lingum er að taka er erfitt að ímynda sér hvað veldur því að ein­ungis tveir af tólf sjá sér fært að koma og tala við þingið. Þá vil ég óska sér­stak­lega eftir því að inn­an­rík­is­ráð­herra sjái sér fært að koma og tala við okkur hérna, að minnsta kosti næst, helst í dag,“ sagði Arndís Anna.

Hlýtur að vera skýring á þessu

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son þing­maður Flokks fólks­ins tók undir gagn­rýn­ina.

„Það er svo­lítið skrýtið að það skuli bara tveir ráð­herrar vera mættir, og það tveir með ný heiti; inn­við­a­ráð­herra og vís­inda-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, ef ég man rétt nafnið á þeim. Og ég spyr: Eru hinir kannski farnir í frí? Það væri ágætt að upp­lýsa hvers vegna í ósköp­unum hingað eru bara tveir komnir. Það eru 12 ráð­herrar og ég myndi telja lág­mark að 40 til 50 pró­sent af þeim myndu skila sér hingað inn í umræð­una. Það hlýtur að vera skýr­ing á þessu og ég spyr bara: Er skýr­ingin sú að hinir séu komnir í frí?“ spurði hann.

Einungis tveir ráðherrar áttu kost á að mæta

Birgir Ármanns­son for­seti Alþingis svar­aði þing­mönnum og sagði að aðstæður hefðu verið með þeim hætti að ekki áttu nema tveir ráð­herrar kost á að koma til fundar í dag en gengið hefði verið eftir því að fleiri kæmust. Á hinn bóg­inn hefðu aðstæður verið með þeim hætti að ekki var hægt að verða við því.

Hann sagð­ist enn fremur vilja geta þess að mögu­leikar þing­manna til að spyrja ráð­herra væru auð­vitað með ýmsum hætti. „Það eru óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir, sem gegna vissu­lega mik­il­vægu hlut­verki. Sama er með skrif­legar fyr­ir­spurnir til munn­legs svars, sem þing­menn eiga kost á að leggja fram, og eins skrif­legar fyr­ir­spurnir til skrif­legs svars. En að sjálf­sögðu verður athuga­semdum hátt­virtra þing­manna komið á fram­færi.“

Sagði hann jafn­framt á það væru for­sæt­is­ráð­herra og for­sæt­is­ráðu­neytið sem skipu­legðu hvaða ráð­herrar kæmu til svara í fyr­ir­spurna­tímum. „En þegar fyr­ir­sjá­an­legt var að það yrði fáliðað var óskað eftir því að reynt yrði að tryggja nær­veru fleiri ráð­herra, sem tókst ekki. Forseti hefur ekki sjálfur skýr­ingar á því hvernig á því stendur, en eins og for­seti gat um áðan verður þeim athuga­semdum sem hér hafa komið fram komið á fram­færi,“ sagði Birgir.

Forseti eigi að upplýsa þingið um ástæður fjarveru ráðherra

Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sagð­ist taka undir með þing­mönnum sem tekið höfðu til máls á undan en þó skyldi virða það við þá ráð­herra sem þó væru mættir.

„Ég er líka þakk­látur hæst­virtum for­seta fyrir að útskýra fyrir okkur með hvaða hætti við getum náð eyrum ráð­herr­ans að öðru jöfnu, en hér kom samt fram áðan að að jafn­aði eiga að vera þrír til staðar. Nú var hægt að lesa það úr orðum for­seta að hann hafi grennsl­ast fyrir um ástæð­urnar fyrir því að það var svona fáliðað. Þá finnst mér A, að hann eigi að upp­lýsa okkur um ástæð­urnar, og B, að hann sem for­seti alls þings­ins legg­ist á árar með okkur og tryggi að við höfum þá alla vega aðgang að ráð­herrum sem okkur ber,“ sagði Logi.

Ráðherrar gegna ákveðnu hlutverki á þingi

Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir þing­maður Við­reisnar benti á að stutt væri síðan þing­flokkur Við­reisnar sendi for­seta þings­ins sér­stakt bréf til að óska eftir því að hægt væri að eiga sam­tal við heil­brigð­is­ráð­herra og við fjár­mála­ráð­herra í hvert skipti sem rík­is­stjórnin fram­lengir sótt­varna­að­gerðir til að eiga sam­tal um það hvaða efna­hags­að­gerðir ættu að fylgja.

„Ég býst fast­lega við því að við þeirri ósk verði orðið. En sú er ekki reyndin í dag, þannig að þetta er okkar sterkasta verk­færi sem stendur að eiga í þessu sam­tali. Það er maka­laust í ljósi þess að í rík­is­stjórn­inni í dag sitja tólf ráð­herrar. Það sitja tólf ráð­herrar í þess­ari rík­is­stjórn og gegna ákveðnu hlut­verki á þingi og þeir eru tveir mættir. Ætlun okkar hér í dag var að ræða við mennta- og barna­mála­ráð­herra um sótt­kví barna, um skóla­göngu þeirra og þá stað­reynd að ótrú­lega mik­ill fjöldi barna hér á landi er í sótt­kví. En við getum ekki átt það sam­tal vegna þess að hann er ekki mættur.“

„Það er enn þá neyðarástand í samfélaginu“

Halldóra Mogensen þing­flokks­for­maður Pírata kom í pontu og var harð­orð í garð ráð­herr­anna. „Það mætti halda að það væri ekk­ert að ger­ast hérna í sam­fé­lag­inu. Hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra er bara í fríi þegar verið að koma með neyð­ar­að­gerðir í þágu atvinnu­lífs­ins vegna COVID-aðgerða rík­is­stjórn­ar­innar og vegna sótt­varna­að­gerða. Það eru fréttir af því að börn séu inni­lokuð, alein í her­bergi í sótt­kví eða ein­angrun, en ekki fáum við að spyrja barna­mála­ráð­herra út í það út af því að hann hefur ekki fyrir því að mæta í óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir og hefur ekki verið neitt ofboðs­lega dug­legur að mæta í óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir yfir höfuð,“ sagði hún og vís­aði í það að Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra var fjar­ver­andi í vik­unni þegar aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar voru ræddar.

„Svo eru fregnir af vinnu­mark­aðnum og ein­stæðum for­eldrum sem eru í vondum málum eftir sótt­varna­að­gerðir og COVID-aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar. Það er ofboðs­lega mikið að ger­ast í sam­fé­lag­inu. Það er enn þá neyð­ar­á­stand í sam­fé­lag­inu og ég krefst þess að ráð­herrar mæti í óund­ir­bú­inn fyr­ir­spurna­tíma og sitji fyrir svörum á þessum tímum. Mér finnst ófor­skammað að hér séu tveir ráð­herrar,“ sagði hún.

Spurði hvort fjármála- og efnahagsráðherra væri fluttur til útlanda

Oddný Harð­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sagði stöð­una vera óásætt­an­lega.

„Sú staða að hér í þing­inu skuli ein­ungis vera tveir af tólf ráð­herrum til svara á þeim tímum sem við lifum nú – og ég þarf ekki að fara yfir það hér í mín­útu­ræðu – er alger­lega óásætt­an­leg. Hæst­virtur for­seti verður að standa með þing­inu og sjá til þess að þetta ger­ist ekki aftur. Þetta minnir mig á það and­rúms­loft sem var hér fyrir hrun þegar ráð­herraræðið var algjört. Við erum að sigla inn í sama anda. Það má ekki ger­ast. Ráð­herrar starfa í umboði þings­ins og við höfum skyldum að gegna í eft­ir­lits­hlut­verki með fram­kvæmd­ar­vald­inu. Og hvar er hæst­virtur fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra? Er hann fluttur til útlanda?“ spurði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár