Landspítalinn svaraði ekki ályktun um kynferðislega áreitni

Í vor sendu tvö fagfélög lækna, Félag almennra lækna og Félag sjúkrahús­lækna, frá sér ályktun sem hvatti stjórn­endur spítalans til þess að endur­skoða verklag sitt er varðar kynferðis­lega áreitni, kynbundið áreiti og ofbeldi á Land­spítalanum. Hvorugt félagið fékk svar við ályktuninni.

Félag sjúkrahús­lækna og Félag almennra lækna sendu frá sér sameiginlega ályktun er varðaði „kynferðis­lega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi á Land­spítala“ þann 27. maí síðastliðinn vegna óánægju beggja félaga með verklag spítalans í mála­flokknum. „Kynbundin áreitni, kynferðisleg áreitni og ofbeldi viðgengst á Land­spítala og öðrum vinnu­stöðum lækna“, segir í ályktuninni.

Árni Johnsen, formaður Félags almennra lækna, segir að ályktunin hafi fyrst og fremst verið send vegna óánægju félaganna tveggja er varðaði verklag og viðbrögð spítalans við formlegri kvörtun á hendur Birni Loga Þórarins­syni, sérfræði­lækni á Land­spítala, en kvörtun vegna framkomu hans barst í febrúar.

Hvorugt félagið fékk svar eða viðbrögð við ályktuninni en hún var send á Pál Matthíasson, þáverandi forstjóra Land­spítala, Ólaf Baldursson, framkvæmda­stjóra lækninga, framkvæmda­stjóra allra sviða Land­spítalans og forstöðu­menn allra kjarna á Land­spítala. 

Hvattir til að endurskoða verklag

Í ályktuninni voru stjórn­endur spítalans hvattir til að „endur­skoða verklag sitt er varðar kynferðis­lega …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár