„Við gátum ekki farið neitt“ - Áhrifamikil umfjöllun um heimilislausa

„Við gátum ekki farið neitt, höfðum enga varasjóði og gátum ekki fengið inn í neinu húsnæðis,“ segir Dawn Johnson, 43 ára gömul heimlislaus kona, í viðtali við New York Times í dag. Hún bjó ásamt manni sínum, 32 ára gömlum afgreiðslu­manni í verslun, M0hamed Diallo, í íbúð í Bronx hverfinu í New York, þar til seinni part árs 2013 að þau neyddust til að flytja úr húsinu vegna lélegs viðhalds.


The New York Times http://t.co/silJeJfIfG #NewYork


— New York News 360 (@NewYorkNews360) September 7, 2015


Eigandi húss­ins hafði þá leyft því að vera án hita og vatns, mán­uðum saman, og end­aði parið á því að leita réttar síns fyrir dóm­stólum. Það reynd­ist þrautin þyngri, vegna fjár­hags­legra skuld­bind­inga sem þurfti að und­ir­gang­ast, og misstu þau hús­næðið að lokum. Á svip­uðum tíma missti Diallo vinn­una, og voru þá góð ráð dýr.

Fólk sem hafði verið með stöðugleikga í sínu lífi, var allt í einu komið á götuna.

New York Times birtir í dag ítarlega umfjöllun um stöðu heimilis­lausra í New York, en að því er fram kemur í umfjölluninni, þá er vandi þeir sem býr á götunni og er án húsnæðis mun fjöl­breytilegri en almenningur gerir sér oft grein fyrir. Í mörgum tilvikum er vímuefna­vandi undir­liggjandi ástæða þess að fólk býr á götunni, og heldur til á lestar­stöðvum og í almennings­görðum, en mörg dæmi eru einnig um að skyndilegar breytingar hjá fólki, svo sem atvinnu­missir og húsnæðis­vandi, kippi fótunum algjör­lega undir lífi fólks. Svo virðist sem kerfis­lægir þættir, sem eigi að tryggja fólki sem lendir skyndi­lega í miklum erfið­leikum skammtíma­húsnæði, sé ekki að virka eins og það á að gera. Þá eru mörg hundruð manns sem glíma við geðræna kvilla, og hafa á einhverjum stigum fengið læknis­meðferð við þeim, lent á götunni þar sem læknis­meðferð hefur ekki verið kláruð eða einstaklingarnir sótt sér meðferð sem þeir eiga rétt á.

Umfjöllunin er byggð á ljós­myndum Joshua Bright, ljós­myndara ritstjórnar New York Times, og viðtölum sem blaða­maðurinn Nate Schwebb tók við heimilslaust fólk í borginni, yfir langt tímabil, en fyrsta umfjöllunin í greina­flokki blaðsins birtist í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár