Spyr hvort Seðlabankinn sé í liði með íslenskum almenningi

Það að leyfa krón­unni að styrkj­ast ætti að auð­velda Seðla­bank­anum að rækja hlut­verk sitt og skyldu um að halda verð­bólg­unni í skefjum og auð­velda íslenskum almenn­ingi lífið, sam­kvæmt þing­manni Við­reisnar.

Guðbrandur Einarsson þingmaður Viðreisnar.
Guð­brandur Ein­ars­son þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þing­maður Við­reisnar, Guð­brandur Ein­ars­son, spurði undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag hvort verið væri að fara rétta leið til að ná stöð­ug­leika í efna­hags­málum sem væri bæði mik­il­vægur og eft­ir­sókn­ar­verður fyrir íslenskan almenn­ing.

„Samkvæmt fram­komnum upp­lýs­ingum greip Seðla­banki Íslands inn í á gjald­eyr­is­mark­aði síð­ast­lið­inn föstu­dag og keypti gjald­eyri fyrir rúmar 800 millj­ónir króna í þeim til­gangi að koma í veg fyrir styrk­ingu krón­unnar.

Það liggur fyrir að styrk­ing krón­unnar myndi leiða til lækk­unar á verði inn­fluttrar vöru og ætti því að draga úr verð­bólgu. Í stað þess að leyfa krón­unni að styrkj­ast til hags­bóta fyrir almenn­ing velur Seðla­bank­inn að halda krón­unni veikri og hækka vexti í stað þess að reyna að draga úr verð­bólgu­þrýst­ingi,“ sagði Guð­brandur í upp­hafi ræðu sinnar.

Hann sagði að geng­is­styrk­ing sem slík ætti að auð­velda Seðla­bank­anum að ná mark­miðum sínum um 2,5 pró­sent verð­bólgu.

Stýrivextir eru 3,75 prósent og verðbólgan hefur ekki mælst meiri í 12 ár

Kjarninn greindi frá því í byrjun maí þegar Pen­inga­­stefn­u­­nefnd Seðla­­banka Íslands ákvað að hækka stýri­vexti bank­ans í 3,75 pró­­sent. Um var að ræða eins pró­­sent­u­­stiga hækkun frá því sem áður var og alls hafa vextir hækkað um þrjú pró­­sent­u­­stig frá því í maí í fyrra, þegar vaxta­á­kvörð­un­­ar­­ferli Seðla­­banka Íslands hófst.

Verð­bólga mæld­ist 7,2 pró­sent í apríl og hefur ekki mælst meiri frá árinu 2010. Verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans er 2,5 pró­sent. Horfur hafa því versnað veru­lega og verð­bólgan er óra­fjarri mark­miði bank­ans. Í yfir­lýs­ing­u pen­inga­stefnu­nefnd­ar við vaxta­hækk­un­ina kom fram að sem fyrr vægi hækkun hús­næð­is­verðs og ann­arra inn­lendra kostn­að­ar­liða þungt auk þess sem alþjóð­legt olíu- og hrá­vöru­verð hefði hækkað mik­ið.

Vill leyfa krónunni að styrkjast

Guð­brandur sagði á þingi í dag að sú leið sem Seðla­bank­inn er að fara, þ.e. að beita stýri­vaxta­hækk­unum í stað þess að leyfa krón­unni að styrkj­ast, hefði jafn­framt í för með sér að vaxta­munur við útlönd væri að aukast. Það myndi að end­ingu auka inn­flæði fjár­magns sem aftur ætti að gera það að verkum að krónan myndi halda áfram að styrkj­ast.

„Ein­hverra hluta vegna á maður erfitt með að skilja hvers vegna þessi leið er valin, að hækka stýri­vexti og koma í veg fyrir að krónan styrk­ist. Það að leyfa krón­unni að styrkj­ast ætti að auð­velda Seðla­bank­anum að rækja hlut­verk sitt og skyldu um að halda verð­bólg­unni í skefjum og auð­velda íslenskum almenn­ingi lífið. Seðla­bank­inn velur hins vegar aðrar leiðir og maður hlýtur að spyrja hvort Seðla­bank­inn sé í liði með íslenskum almenn­ingi,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár