Stýrivextir hækkaðir um eitt prósentustig og eru nú 3,75 prósent

Seðla­bank­inn hefur hækkað stýri­vexti um þrjú pró­sentu­stig frá því í maí í fyrra. Hækkunin í dag mun auka greiðslu­byrði þeirra sem eru með óverð­tryggð hús­næð­is­lán umtals­vert.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands ákvað að hækka stýri­vexti bank­ans í 3,75 pró­sent í morg­un. Um er að ræða eins pró­sentu­stiga hækkun frá því sem áður var og alls hafa vextir hækkað um þrjú pró­sentu­stig frá því í maí í fyrra, þegar vaxta­á­kvörð­un­ar­ferli Seðla­banka Íslands hófst.

Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefnd­ar­innar segir að efna­hags­horfur hafi heldur versnað frá febr­ú­ar­spá Seðla­bank­ans vegna nei­kvæðra áhrifa inn­rásar Rúss­lands í Úkraínu. Á hinn bóg­inn séu vís­bend­ingar um tals­verðan þrótt inn­lendra umsvifa. „Slakinn í þjóð­ar­bú­inu virð­ist horf­inn og spenna tekin að mynd­ast á vinnu­mark­aði. Gert er ráð fyrir 4,6 pró­sent hag­vexti í ár en að hann verði tæp­lega 3 pró­sent á næstu tveimur árum.“

Verð­bólga mæld­ist hins vegar 7,2 pró­sent í apríl og hefur ekki mælst meiri frá 2010. Verð­bólgu­mark­mið Seðla­bank­ans er 2,5 pró­sent. Horfur hafa því versnað veru­lega og verð­bólgan er óra­fjarri mark­miði bank­ans. Í yfir­lýs­ing­unni segir að enn sem fyrr vegi hækkun hús­næð­is­verðs og ann­arra inn­lendra kostn­að­ar­liða þungt auk þess sem alþjóð­legt olíu- og hrá­vöru­verð hafi hækkað mikið. „Verð­hækk­anir eru því á breiðum grunni sem end­ur­spegl­ast í hraðri aukn­ingu und­ir­liggj­andi verð­bólgu sem mælist nú ríf­lega 5 pró­sent. Þá hafa verð­bólgu­vænt­ingar hækkað á alla mæli­kvarða. Samkvæmt spá Seðla­bank­ans eru horfur á að verð­bólga auk­ist í rúm­lega 8 pró­sent á þriðja fjórð­ungi árs­ins sem er 2,8 pró­sentum meiri verð­bólga en spáð var í febr­úar. Gert er ráð fyrir að sam­spil vaxta­hækk­ana og hertra lán­þega­skil­yrða muni hægja á verð­hækkun hús­næðis og inn­lendri eft­ir­spurn.“

[adspot]Pen­inga­stefnu­nefnd telur lík­legt að herða þurfi taum­hald pen­inga­stefn­unnar enn frekar á næstu mán­uðum til að tryggja að verð­bólga hjaðni í mark­mið innan ásætt­an­legs tíma. „Ákvarð­anir í atvinnu­lífi, á vinnu­mark­aði og í rík­is­fjár­málum munu skipta miklu um hversu hátt vextir þurfa að fara.“

Næsti vaxta­á­kvörð­un­ar­dagur er í júní.

Aðrar aðgerðir Seðlabankans hafa ekki bitið

Hækk­andi hús­næð­is­verð er svo stærsti þátt­ur­inn í þeirri stór­auknu verð­bólgu sem mælist á Íslandi og vaxta­hækk­un­inni er ætlað að reyna að hemja. Seðla­banki Íslands hefur reynt ýmis­legt til að stemma stigu við ástand­inu fyrir utan að hækka vexti skarpt, eða úr 0,75 í 3,0 pró­sent á einu ári.

Í sept­em­ber í fyrra ákvað fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­banka Íslands einnig að setja reglur um hámark greiðslu­byrðar á fast­eigna­lánum og end­ur­vekja hinn svo­kall­aða sveiflu­jöfn­un­ar­auka. Áður hafði nefndin lækkað hámark veð­­setn­ing­­ar­hlut­­falls fast­­eigna­lána til neyt­enda lækkað úr 85 í 80 pró­­sent en hámarks­­hlut­­fall fyrir fyrstu kaup­endur hélst óbreytt í 90 pró­­sent.

[links]Enn sem komið er hafa þessar aðgerðir Seðla­bank­ans ekki bitið sem neinu nem­ur. Þvert á móti hækk­aði íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 3,1 pró­sent í síð­asta mán­uð­i. Síð­asta mælda árs­hækkun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mæld­ist um 22 pró­sent. Þetta er afrakstur þess að eft­ir­spurn hefur verið langt umfram fram­boð. Í síð­ustu birtu mán­að­ar­skýrslu hag­deildar Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar kom fram að fram­boð íbúða til sölu hafi verið undir eitt þús­und á land­inu öllu í byrjun mars. Það er þó ofmat á fram­boð­inu því um þriðj­ungur íbúð­anna voru þegar komnar í fjár­mögn­un­ar­ferli og því búið að sam­þykkja til­boð í þær. Til sam­an­burðar fór það í fyrsta sinn niður fyrir tvö þús­und íbúðir í mars í fyrra.

Dýr lán og gríð­ar­leg sam­keppni um allt hús­næði sem býðst til sölu gerir það að verkum að fleiri lán­takar eru að færa sig í þau lán sem bera lægstu afborg­an­irn­ar. Það eru verð­tryggð lán, en hin mikla verð­bólga sem nú er gerir þau lán þó afar óhag­stæð, enda leggst verð­bólgan sem verð­bætur á höf­uð­stól þeirra lána.

Sam­kvæmt nýbirtum tölum Seðla­banka Íslands um útlán banka lands­ins þá tók lands­menn verð­tryggð lán á föstum vöxtum fyrir 3,5 millj­arða króna í mars. Þeir hafa ekki tekið jafn mikið af slíkum lánum síðan í des­em­ber 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár