Ryanair lokar í Kaupmannahöfn eftir helgi - hótar að loka líka í Billund í næstu viku

Írska lággjalda flug­félagið Ryanair hyggst flytja starfstöð sína í Kaupmanna­höfn til Kaunas í Litháen þann 14. júlí næst­komandi. Í frétta­tilkynningu sem flug­félagið sendi frá sér í dag segir að áfram verði þó flogið frá Kastrup flugvelli í Kaupmanna­höfn til þrettán áfanga­staða félagsins víðs vegar um Evrópu.

Eins og Kjarninn hefur greint frá tapaði Ryanair nýverið dómsmáli fyrir dönskum vinnuréttar­dómstóli, sem snérist um hvort dönskum flugvallar­starfs­mönnum væri heimilt að efna til vinnu­stöðvunar í því skyni að neyða flug­félagið til að fara að dönskum lögum um kaup og kjör. Stjórn­endur Ryanair voru mjög ósáttir við niður­stöðuna og hyggjast fara með málið fyrir dómstól Evrópu­sambandsins.

Boðuð allsherjar vinnu­stöðvun dönsku stéttar­félaganna, til stuðnings starfs­mönnum Ryanair í Danmörku, átti að að fara fram þann 18. júlí næst­komandi og því brugðu forsvars­menn flug­félagsins á það ráð að loka starfs­stöðinni í Kaupmanna­höfn.

Hætta í Billund verði ekki fallið frá aðgerðum


Ein vél í eigu félags­ins er með Billund sem heima­höfn, og byrjar og endar sínar ferðir þar. Danska alþýðu­sam­bandið benti á sínum tíma á að með slíku fyr­ir­komu­lagi ætti að greiða sam­kvæmt dönskum kjara­samn­ingum en í Billund vógu hags­mun­irnir af starf­semi Ryanir hærra og þar við sat. Starfs­fólk Ryanair í Danmörku var ekki ráðið sam­kvæmt dönskum kjara­samn­ingum, það er sama fyr­ir­komu­lagið og flug­fé­lagið hefur haft víða um lönd.

Rök Ryanair hafa ætíð verið þau sömu, félagið sé írskt, skráð á Írlandi og beri þarafleiðandi engin skylda til að hlíta lögum og reglum um kaup og kjör í þeim löndum sem félagið flýgur til og hefur aðra starfsemi. Þetta hefur Ryanair tekist, þangað til núna.

Þá greindi viðskipta­blað Berlingske Tidende frá því í kvöld að önnur frétta­tilkynning hafi borist fjöl­miðlum frá írska lággjalda flug­félaginu í kvöld þar sem það hóti að starfs­stöðinni í Billund verði sömuleiðis lokað frá og með miðnætti á föstu­daginn í næstu viku, falli dönsku verkalýðs­félögin ekki frá boðuðum aðgerðum gegn félaginu þann 18. júlí næst­komandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár