Miðaldra konur með uppistand

Hópurinn Miðaldra Ísland hélt uppistand í tilefni af 46 ára afmæli Auðar Jóns­dóttur

Fullt var út úr dyrum síðastliðið föstudags­kvöld þegar Miðaldra Ísland stóð fyrir uppi­standi í tilefni af 46 ára afmæli Auðar Jóns­dóttur skálds.

Miðaldra Ísland samanstendur af Auði Jóns­dóttur skáldi, Katrínu Odds­dóttur lögmanni og Berglindi Rós Magnúsdóttur, dósent á Mennta­vísinda­sviði. Uppi­standið síðasta föstudag var frumraun þeirra þriggja þegar kemur að uppi­standi.

Afmæli nýtt sem hreyfiafl

Auði og Katrínu hafði lengi langað að spreyta sig á uppi­standi um ást, miðaldra krísur og stjórnar­skrána en báðar höfðu þær reynst of uppteknar til að koma því í verk. Berglind, sú þriðja í hópnum, heyrði af draumórum þeirra og tilhugsunin kitlaði hana svo að hún slóst að lokum í hópinn. Afmæli Auðar var því nýtt sem hreyfiafl til framkvæmda og afsökun til að „láta vaða“, afmælið var bara „tylliástæða“.

„Við Berglind skildum báðar fyrir einu og hálfu ári síðan og síðan þá hefur fólk sagt okkur svo margt, af miðaldra krísum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár