ESB lítur svo á að umsókn hafi ekki verið dregin formlega til baka

Umsókn Íslands um aðild að Evrópu­sambandið hefur ekki verið dregin formlega til baka, segir Maja Kocijanic, talsmaður framkvæmda­stjóra nágrennastefnu og aðildar­viðræðna hjá Evrópu­sambandinu. Hún sat fyrir svörum á blaðamanna­fundi framkvæmda­stjórnar ESB í Brussel fyrr í dag.

Kocijanic sagði að það væri réttur Íslands að taka sjálf­stæða ákvörðun um málið. Evrópu­sambandið virði slíkar ákvarðanir. Hún sagði jafnframt að Ísland væri ennþá mikilvægt samstarfs­ríki og dyr Evrópu­sambandsins stæðu Íslendingum auðvitað enn opnar.

Margaritis Schinas, talsmaður Jean-Claude Juncker, forseta framkvæmda­stjórnar ESB, neitaði því að ákvörðun ríkis­stjórnarinnar væri áfall fyrir Evrópu­sambandið. Ísland hefði ákveðið að sækja um þegar ástandið hér var erfitt og nú vildi Ísland taka pásu. „Það er í góðu lagi. Það er fullveldis­ákvörðun, dyr okkar standa opnar, við erum áfram í viðskiptum,“ sagði hann.

Jafnaðarmenn á Evrópuþinginu skora á ríkisstjórnina


Rík­is­stjórn Íslands ætti að fá sam­þykki Alþingis fyrir því að draga til baka umsókn að Evr­ópu­sam­band­inu, rétt eins og sam­þykki Alþingis var fengið fyrir því að hefja aðild­ar­ferlið. Þetta segir Knut Fleckenstein, vara­for­maður þing­flokks jafn­að­ar­manna á Evr­ópu­þing­inu.

Þing­flokkur jafnaðar­manna á Evrópu­þinginu sendi frá sér frétta­tilkynningu í dag þar sem stjórn­völd á Íslandi eru hvött til þess að standa við loforð um að halda þjóðar­atkvæða­greiðslu um aðildar­viðræður við ESB. Formaður þing­flokksins, Gianni Pittella, segir að þings­ályktunar­tillaga sem Alþingi samþykkti sé ennþá í gildi. „Það er auðvitað á valdi íslensku þjóðarinnar að ákveða hvort hún vill ganga í Evrópu­sambandið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár