Starfsemi United Silicon stöðvuð þar til úrbætur hafa verið gerðar

Umhverf­is­stofnun mun veita leyfi fyrir til­raunum á mengun en þar til úrbætur hafa verið gerðar fær United Silicon ekki að starfa.

Umhverf­is­stofnun hefur ákveðið að stöðva starf­semi United Silicon í Helguvík vegna þess að ekki hefur verið ráð­ist í nægj­an­legar úrbætur á því sem snertir holl­ustu­hætti og meng­un­ar­varnir. Umhverf­is­stofnun til­kynnti þetta með bréfi til United Silicon sem sent var í gær.

Leyfi verður þó gefið leyfi fyrir gang­setn­ingu ljós­boga­ofns kís­il­verk­smiðj­unnar til þess að hægt verði að greina og rann­saka mengun frá verk­smiðj­unni. Umhverf­is­stofnun mun ekki veita leyfi nema við sér­stök veð­ur­skil­yrði svo hlífa megi íbúum á svæð­inu fyrir frek­ari mengun. Íbúum á svæð­inu þarf einnig að vera til­kynnt um upp­gkeyrslu ljós­boga­ofns­ins.

Stöðv­unin á starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins varir þar til skýr­ingar liggja fyrir um orsök lykta­meng­unar og eftir að nægj­an­legar úrbætur hafa farið fram.

Stjórn­endur United Sil­icon í Helgu­vík gera ekki athuga­semdir við þá ákvörðun Umhverf­is­stofn­unar að heim­ila ekki gang­setn­ingu kís­il­verk­smiðju fyr­ir­tæk­is­ins að nýju nema að höfðu sam­ráði við stofn­un­ina. Þetta kom fram í frétta­til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­in­u í gær.

United Sil­icon sendi Umhverf­is­stofnun bréf um þetta í gær, sem svar við ákvörðun stofn­un­ar­innar fyrir viku síð­an. Félagið lýsti þar ein­dregnum vilja til að starfa með Umhverf­is­stofnun að end­ur­ræs­ingu verk­smiðj­unnar og hvetur stofn­un­ina til að hafa beina aðkomu. Fyr­ir­tækið muni greiða fyrir kostnað sem stofn­unin gæti orðið fyrir við það að hafa beina aðkomu að ræs­ingu og rann­sókn­um.

Í bréf­inu frá United Sil­icon segir að helsta vanda­mál félags­ins frá upp­hafi rekst­urs­ins megi rekja til lít­ils rekstr­ar­tíma ljós­boga­ofns­ins, sem stafar af tíðum bil­unum í jað­ar­bún­aði ofns­ins og hefur leitt til fjöl­margra ofn­stöðv­ana og keyrslu ofns­ins á lágu álagi. „Al­var­leg­asta afleið­ing þessa hefur verið losun lykt­ar, sem valdið hefur íbúum Reykja­nes­bæjar óþæg­ind­um.“

Stjórn félags­ins hafi sett lausn þessa vanda­máls í algeran for­gang og hefur ráðið norska ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið Multi­konsult til að gera til­lögur um þær end­ur­bætur sem nauð­syn­legar eru til að tryggja að verk­smiðjan nái rekstr­ar­stöð­ug­leika og rekstr­ar­gæðum sem stand­ist sam­an­burð við það sem tíðkast í þeim fjöl­mörgu verk­smiðjum sem starfa í Nor­egi.

Frum­rann­sókn sé lokið og nið­ur­staðan skýr um að ekki séu stór­felldir ágall­ar, og allar for­sendur til að verk­smiðjan geti náð fullum afköst­um. Næsta skref sé úttekt með ljósofn­inn í rekstri, og hefur verið leitað til norsku loft­rann­sókna­stofn­un­ar­innar NILU til þess. „Óhjá­kvæmi­legt er að við þær rann­sóknir muni ber­ast ein­hver lykt frá verk­smiðj­unni, en félagið mun í sam­ráði við UST og með góðum fyr­ir­vara til­kynna opin­ber­lega um hvenær helst muni lyktar að vænta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár