Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider tekur reglulega saman lista yfir mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag. Aldrei þessu vant kemur Ísland lítillega við sögu!


  1. Kínverski hlutabréfa­markaðurinn hélt áfram að falla við opnun markaða í dag.

  2. Yanis Varoufakis, fyrr­verandi fjármála­ráðherra Grikk­lands, segir að hann hafi langað til að „hakka“ skatt­kerfið í Grikk­landi og breyta gjald­miðlinum aftur í drökmu án þess að segja neinum frá því.

  3. Lögfræðingur Donald Trump hefur hótað tveimur blaða­mönnum málsókn fyrir að skrifa umdeilda grein um Trump og fyrr­verandi eiginkonu hans, Ivönu. Blaða­mennirnir vinna hjá The Daily Beast og sögðu frá því að í skilnaði hjónanna fyrr­verandi greindi Ivana frá því að Donald hefði nauðgað henni, en síðar sagði hún það orðalag ekki nákvæmt en að henni hefði fundist hann misnota hana.

  4. Atlantshafs­bandalagið heldur í dag neyðar­fund til að ræða hættuna sem Tyrklandi stafar af Íslamska ríkinu. Tyrkir virkjuðu fjórðu grein stofn­sáttmála banda­lagsins um helgina, en þetta er aðeins í fimmta skipti í sögunni sem það er gert.

  5. Lögregla í Peking í Kína hefur lokað stórri verksmiðju þar sem falsaðir iPhone símar voru fram­leiddir. Miðaldra hjón ráku verksmiðjuna sem sögð er hafa verið 19 milljóna dala virði.

  6. Vladimír Pútín Rúss­lands­forseti hefur sagt að Sepp Blatter, fráfar­andi framkvæmda­stjóri FIFA, eigi skilið að fá Nóbels­verðlaunin.

  7. David Cameron, forsætis­ráðherra Bretlands, lofar því að berjast gegn „óhreinu fjármagni“ á húsnæðis­markaði í Bretlandi. Landið eigi ekki að verða skjól fyrir peninga­þvætti.

  8. Teva Pharmaceutical Industries hefur keypt hluta af Allergan, móður­félagi Actavis á Íslandi, eins og Kjarninn hefur greint frá. Kaupin eru stærstu einstöku viðskipti í sögu Ísraels.

  9. Volkswagen hefur tekið framúr Toyota, er orðinn stærsti fram­leiðandi bíla í heiminum.

  10. Stripe, greiðslu­fyrirtæki í Sílíkon­dalnum, hefur fengið inn fjármagn frá fjár­festinga­hópi sem greiðslukortarisinn Visa leiðir, og nýsköpunar­fyrirtækið er nú metið á fimm milljarða Bandaríkja­dala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár