Facebook segir að "lol" sé dautt - Emoji og "haha" er það sem er töff

Það þykir ekki lengur flott að segja "lol" þegar þú þarft stafrænt að hlæja. Mun meira móðins er að segja "haha" eða nota tilfinninga­tákn, svokölluð emoji, til að skella uppúr í netheimum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem samskipta­miðlarisinn Facebook birti í síðustu viku. Í skýrslunni greindu sérfræðingar Facebook hvaða leiðir notendur miðilsins nota til að tákna hlátur. Rann­sóknin, sem náði yfir bandaríska notendur síðunnar, var framkvæmd í síðustu viku maí síðastliðins. Í henni skoðuðu sérfræðingarnir notkun á styttingum eða táknum fyrir stafrænan hlátur í stöðu­uppfærslum og ummælum við þær. Rann­sóknin náði ekki yfir samskipti fólks í einka­skilaboðum eða -samræðum.

Helstu niður­stöður skýrslunnar eru þær að þeir sem nota "lol" (stytting á laugh out loud) er eldri en þeir notendur sem nota "haha" eða "hehe" þegar þeir hlæja strafrænt. Flestir nota "haha" til að koma því á framfæri að þeim hafi þótt eitthvað fyndið eða hlægilegt. Um helmingur allra stafrænna hlátra­skalla voru táknuð með þeim hætti. Emoji-tákn voru notuð í þriðjungi tilvika en einungis 1,9 prósent notenda eru ennþá að "lol-a". "Lol-ið" virðist því vera að fara sömu leið og áður vinsælir samskipta­frasar á netinu á borð við "rotfl" (rolling on the floor laughing) og "Imao" (laughing my ass off), á öskuhauga úr sér genginna tísku­fyrirbrigða.


Nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar sýnir einnig að það er munur á því hvernig kynin hlæja á Facebook. Konur er til að mynda mun lík­legri til að nota til­finn­inga­tákn til að lýsa hlátri sínum en karlar nota mun frekar "haha" eða "hehe". Hið nú hall­æris­lega "lol" er aðeins vin­sælla hjá konum en körlum.

Wall Street Journal fjallaði um rann­sóknina á síðu sinni í gær. Þar var rætt við málvísinda­manninn Tyler Schnoebelen, sem sagði að það hafi komið sér á óvart hversu fáir séu enn að "lolla". Hann gagnrýndi rann­sóknina fyrir að ná ekki yfir eina tegund skrifaðs hláturs sem njóti sívaxandi vinsælda á samfélags­miðlum, líka hjá ensku­mælandi notendum. Það er "jaja" eða "jeje", sem spænsku­mælandi fólk notar í stað "haha" eða "hehe".

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár