Eldur úr bíl í bíl en engar bætur

Eldur barst úr einni bifreið í aðra sem brann til kaldra kola. Héraðs­dómur hafnaði því að Sjóvá-Almennar þyrftu að greiða eiganda bifreið­ar­innar bætur.

Héraðsdómur Reykjavíkur
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur

Héraðs­dómur Reykja­víkur kvað upp dóm í dag þar sem bóta­skyldu trygginga­félagsins Sjóvá-Almennar vegna bruna­tjóns á bíl var hafnað. Eigandi bílsins höfðaði mál gegn trygginga­félaginu í kjölfar þess að eldur sem logaði í öðrum bíl barst í hans sem varð þess valdandi að bíll hans gjör­eyðilagðist. Taldi stefnandi málsins að trygginga­félaginu bæri að greiða sér skaða­bætur út frá ábyrgðar­tryggingu eiganda bifreiðarinnar sem eldurinn barst frá. Samkvæmt 88. gr. umferðar­laga skal sá sem ábyrgð ber á bíl að bæta það tjón sem hlýst af notkun þess.

Bíllinn brann til kaldra kola þann 28. desember og í kjölfar þess að trygginga­félagið hafnaði bóta­skyldu höfðaði eigandinn mál fyrir héraðs­dómi þann 30. nóvember í fyrra.

Niður­staða tækni­deildar lögreglu um rannsókn á brunanum var sú að enginn grunur væri um íkveikju af manna­völdum. Engu var slegið föstu um elds­upptök og voru þau sögð ókunn. Þá kom fram í niður­stöðunni að líklega hefði kviknað í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár