Brakið sem fannst er af Boeing 777 flugvél

Flug­félagið Malaysian Airlines hefur staðfest að brakið sem fannst á frönsku eyjunni Réunion á Indlands­hafi í fyrradag sé af Boeing 777 flugvél. Afar líklegt er því að brakið sé af MH370, sem hvarf af ratsjám fyrir sextán mánuðum, í mars 2014. Vélin var á leið yfir Indlands­hafið frá Kuala Lumpur til Peking. Stjórn­völd í Malasíu segja að brakið færi þau skrefi nær því að leysa ráðgátuna um hvarf flug­vélarinnar.

Greint er frá nýjustu fréttum af málinu á vef The Guardian í dag og eftir­farandi myndskeið af brotinu birt. Brakið er tveir metrar og er talið hluti af væng.

Yfirmaður leitar­teymisins, Ástralinn Martin Dolan, segir MH370 flugvél Malaysian Airlines vera einu Boeing 777 vélina sem hafi farist á svæðinu, svo vitað sé, og því brakið líklegast af henni. Enn sé þó unnið með frönskum og malasískum sérfræðingum við að greina upplýsingar þannig að allt sé rétt. Vonir standa til að stað­festing fáist innan 24 sólar­hringa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár