Um helmingur fyrirtækja í nýsköpun

Samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands er mikil nýsköpun stunduðí fyrir­tækjum á Íslandi.

Á árunum 2014–2016 stundaði helmingur fyrir­tækja á Íslandi með 10 starfs­menn eða fleiri nýsköpun þar sem nýjar vörur eða þjónusta var sett á markað eða nýir verk­ferlar innleiddir.

Þetta er svipuð niður­staða og í fyrstu mælingu Hagstofunnar árin 2012–2014, en greint var frá niður­stöðunum á vef Hagstofunnar í gær.

Þriðjungur fyrir­tækja setti nýja vöru eða þjónustu á markað eða endur­bætti eldri vöru eða þjónustu. „Gat það þó verið nýjung hjá fyrir­tækinu sjálfu án þess að vera nýjung á markaðnum, en 25% fyrir­tækja settu á markað vörur eða þjónustu sem voru nýjungar á markaði. Jafnframt innleiddi þriðjungur fyrir­tækja nýja verkferla á tíma­bilinu. Hjá 31% fyrir­tækja var einhver nýsköpunar­starfsemi sem leiddi ekki til þess að vörur eða þjónusta var sett á markað eða verk­ferlar innleiddir á tíma­bilinu,“ segir í umfjöllun Hagstofunnar um þess mál.

Auk nýsköpunar vöru, þjónustu og verkferla gátu fyrirtæki hafa innleitt nýtt starf­skipulag eða nýjungar í markaðs­setningu. Um 31 prósent fyrir­tækja innleiddu þannig nýtt starf­skipulag á tíma­bilinu, en 27 prósent innleiddu nýjungar í markaðs­setningu.

Ef þess konar nýsköpun er talin með sem nýsköpun almennt, auk nýsköpunar vöru, þjónustu og verkferla, voru 55 prósent fyrir­tækja virk í nýsköpun á tíma­bilinu í stað 50 prósent. Var það hlutfall 59% á árunum 2012–2014 þar sem nýsköpun skipulags og markaðs­setningar var algengari þá.

Í nýjastasjónvarps­þætti Kjarnans á Hringbraut er fjallað töluvert um nýsköpun og menntamál, ekki síst í samhengi við miklar breytingar sem eru að verða í atvinnu­lífi vegna tækni­framfara. Ragn­heiður M. Magnúsdóttir, stjórn­andi hjá Marel, er gestur þáttarins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár