Menntun og fjórða iðnbyltingin sem við erum að lifa eru viðfang næsta þáttar Kjarnans á Hringbraut, sem sýndur verður klukkan 21 í kvöld. Gestir þáttarins að þessu sinni eru Ragnheiður H. Magnúsdóttir, stjórnandi hjá Marel og formaður Hugverkaráðs Samtaka iðnaðarins og ón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.
Ragnheiður kallar þar eftir því að Ísland fari að setja sér einhverskonar markmið. Mikil hræðsla sé við það. Eitt slíkt markmið gæti til að mynda verið það að Íslandi ætli sér að verða best í heimi í gervigreind árið 2025. „Þetta eru kannski draumórar, en við verðum að fá að dreyma. Ef við erum með setningar eins og þessa[...]Þá er svo auðvelt fyrir atvinnulífið, menntakerfið og stjórnvöld að styðja við svona setningar.
[adspot]Við verðum að vera aðeins hugrakkari að koma fram með svona setningar. Þær mega vera margar, en að koma fram með setningar sem við getum haldist í hendur við að ná. Við setjum ekki mann á tunglið nema að við séum með einhverskonar markmið.“
Jón Atli heldur því meðal annars fram að öflugur háskóli sé byggðamál. Að hafa öflugan háskóla á Íslandi tryggir að fólk vill búa hér til framtíðar.“ Fjöregg hvers samfélags séu rannsóknir, menntun, nýsköpun og það að þjálfa nemendur í þessum þáttum til að verða undirstaða atvinnulífsins.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir