Félag fréttamanna gagnrýnir myndband Samherja harðlega

Stjórn Félags frétta­manna, stéttar­félag frétta­fólks á Ríkis­útvarpinu, segir ómaklega veist að Helga Seljan frétta­manni í myndbandi sem Samherji birti í dag. Áhyggju­efni sé að reynt sé að gera frétta­mann tortryggi­legan í stað þess að svara spurningum.

Höfuðstöðvar Ríkisútvarpsins í Efstaleiti.
Höf­uð­stöðvar Rík­is­út­varps­ins í Efsta­leiti. Mynd: RÚV

Stjórn Félags frétta­manna, stéttar­félags frétta­fólks á Ríkis­útvarpinu, hefur sent frá sér yfir­lýsingu þar sem það er harðlega gagnrýnt „að stór­fyrirtækið Samherji skuli veitast að persónu Helga Seljan frétta­manns með ómaklegum hætti.“

Einnig segir í yfir­lýsingunni að myndband fyrir­tækisins, sem birt var í dag, virðist hafa verið unnið til þess eins að vekja efasemdir um réttmæta umfjöllun fjölmiðla um málefni fyrir­tækisins.

„Það er áhyggju­efni að forsvars­menn stór­fyrirtækja, sem fjöl­miðlar fjalla eðlilega um, skuli velja að reyna að gera einstaka fjölmiðla­menn tortryggilega í stað þess að svara efnislega þeim atriðum sem fram hafa komið í umfjöllun fjölmiðla um starfsemi fyrir­tækisins. Það vekur jafnframt áhyggjur að fyrir­tækið skuli birta slíkar ávirðingar í gervi heimilda­þáttar og grafa þannig undan fjöl­miðlum almennt,“ segir í yfir­lýsingu félagsins, sem Alma Ómars­dóttir formaður þess undir­ritar.

Stjórn Félags frétta­manna segir það þekkt víða um heim að „fjár­sterkir aðilar beiti ýmsum aðferðum til að vekja efasemdir um frétta­flutning sem að þeim snýr“ og að það skapi þá hættu á að grafið sé undan trausti á fjöl­miðlum og að fjöl­miðlar veigri sér við að fjalla um einstaka aðila.

„Af því er mikil hætta búin fyrir lýðræðislegt samfélag sem byggir á því að almenningur fái að vita hvað ráðamenn í stjórn­málum og áhrifa­menn í viðskiptum og atvinnu­lífi aðhafast. Slíkt hefur legið í loftinu síðan Kveikur, Stundin og Al Jazeera fjölluðu um Samherja­skjölin síðastliðið haust,“ segir í yfir­lýsingu stjórnar félagsins.

Þar er einnig lýst yfir undrun og vonbrigðum með það að „sumir fjöl­miðlar“ hafi tekið gagnrýnis­laust upp ásakanir gagnvart Helga Seljan sem birtust í myndbandi Samherja í morgun.

BÍ: Blaðamenn geti sífellt átt von á að baka sér óvinsældir

Umfjöllun um málið hefur einnig birst á vef Blaðamanna­félags Íslands í dag, undir fyrir­sögninni „Árekstur fjár­sterks og fjöl­miðils“.

Þar segir meðal annars að þetta sé „ekki í fyrsta sinn sem árekstrar verða milli blaða­manna og fjölmiðla á Íslandi annars vegar og fjár­sterkra aðila hins vegar, og væntanlega ekki það síðasta“ og að þetta sé „áminning um að blaðamenn geta sífellt átt von á að baka sér óvin­sældir í gagnrýnni umfjöllun sinni um menn og málefni.“

„Sú aðferð Samherja að búa til sérstakan myndbands­þátt um málið er til marks um þá þróun sem er að verða í samskiptum fjölmiðla og (fjár­sterkra) fyrir­tækja sem telja á sig hallað, en hefð­bundinn andmæla­réttur, kæru­leiðir eða athuga­semdir á heima­síðum virðast ekki vera taldar duga þegar máliin eru stór og umfangs­mikil,“ segir í færslunni á vef BÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár