Ríki ESB semja um móttöku flóttafólks og hækka kvóta

Þýskaland mun taka við 40 þúsund hælis­leitendum sem nú eru í Grikk­landi, Ítalíu og Ungverja­landi, og Frakkland mun taka við 30 þúsund hælis­leitendum frá löndunum þremur, samkvæmt nýjum drögum að samkomu­lagi um fjölda hælis­leitenda og dreifingu þeirra innan Evrópu­sambandsins. Samkvæmt heimildum frétta­stofu Reuters verður áður samþykktur kvóti, sem kvað á um flutninga 40 þúsund hælis­leitenda til annarra Evrópu­sambands­ríkja frá Ítalíu, Grikk­landi og Ungverja­landi, hækkaður í 160 þúsund manns.

Áætlað er að Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmda­stjórnar ESB, kynni nýtt samkomulag á miðvikudag. Fyrra samkomulag náði aðeins til Ítalíu og Grikk­lands en það mun nú einnig ná til flótta­fólks í Ungverja­landi. Löndin þrjú hafa verið algengustu komu­staðir flótta­manna frá Sýrlandi þegar þeir stíga fæti inn í Evrópu, þau tvö fyrr­nefndu hafa verið fyrsti viðkomu­staður þeirra flótta­manna sem ferðuðust sjóleiðina og Ungverja­land hefur glímt við mikla fjölgun flótta­manna sem ferðast land­leiðina í gegnum Balkans­kaga.


Í júní tókst ekki að semja um bindandi lágmarks­fjölda flótta­manna sem hvert ríki ESB skyldi taka að sér. Síðan þá hefur straumur flótta­manna til álfunnar vaxið gríðar­lega og hefur aldrei verið viðlíka í sögunni. Frönsk og þýsk stjórn­völd þrýsta nú á önnur ríki Evrópu­sambandsins um að gangast við dreifingu flótta­manna um álfuna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár