Þolendur Epsteins og þingmenn gagnrýna yfirstrikanir

„Erum við að vernda þolendur eða erum við að vernda þessa úrvals­karla? Allt ferlið við að vera gegnsætt snerist um að yfir­strika aðeins nöfn þolenda og fórnar­lamba,“ spyr einn af þolendum Jeffrey Epstein.

Tengdur
Tengdur Jeffrey Epstein var vel tengdur og má finna myndir af fjöl­mörgum valda miklum mönnum í þeim skjölum sem birt hafa verið. Mynd: MCMULLAN CO/SIPA

Þolendur dæmda kynferðis­afbrota­mannsins Jeffrey Epstein hafa lýst yfir reiði sinni eftir að skjöl úr málum gegn honum, sem lengi hefur verið kallað eftir að komi fram í dags­ljósið, voru birt. Búið var að strika út fjölda síðna og ritskoða myndir. 

Í skjölunum sem bandaríska dómsmála­ráðuneytið birti voru myndir af Bill Clinton, fyrr­verandi forseta, og öðrum þekktum einstaklingum úr ríkum vinahópi Epsteins, þar á meðal Mick Jagger og Michael Jackson.

En yfir­strikanir á mörgum skjalanna ýttu undir efasemdir um að birtingin myndi þagga niður í samsæris­kenningum um yfir­hylmingu á æðstu stöðum.

„Birtið bara skjölin og hættið að strika yfir nöfn sem ekki þarf að yfir­strika,“ sagði Marina Lacerda, ein af þeim sem ásakaði Epstein, í samtali við CBS.

„Erum við að vernda þolendur eða erum við að vernda þessa úrvals­karla? Allt ferlið við að vera gegnsætt snerist um að yfir­strika aðeins nöfn þolenda og fórnar­lamba.“

…

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Epstein-skjölin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár