Kerecis hlýtur Nýsköpunarverðlaunin

Kerecis hefur náð miklum árangri á átta árum en hjartað í starfseminni er á Ísafirði.

Fyrir­tækið Kerecis hlaut Nýsköpunar­verðlaun Íslands 2018 sem afhent voru á Nýsköpunar­þingi í dag.

Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóra Kericis, veitti verð­laununum viðtöku úr hendi Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfa­dóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar­ráðherra, að því er fram kemur í tilkynningu frá Rannís, Nýsköpunar­miðstöð Íslands og Nýsköpunar­sjóði. Nýsköpunar­þingið var haldið á Grand Hótel Reykjavík undir yfir­skriftinni: Nýjar lausnir – betri heilsa?

Kerecis er nýsköpunar­fyrirtæki sem vinnur að þróun fjölmargra vara sem tengjast húð- og vefja­viðgerðum. Megin­stefið í starfsemi fyrir­tækisins er hagnýting á náttúru­legum efnum sem styðja við endur­sköpun húðar og líkams­vefja. Fyrir­tækið er með höfuð­stöðvar og fram­leiðslu á Ísafirði og hóf rekstur fyrir átta árum.

„Í rökstuðningi dómnefnar segir: Kerecis hefur leitt öflugt nýsköpunar­starf sem tengir saman nýja notkunar­möguleika á sjávar­afurðum í heilbrigðis­tækni. Fyrir­tækið byggir á sterkum þekkingar­grunni og virku samstarfi við lækna, fyrirtæki og rannsókna­stofnanir. Undan­farið hefur fyrir­tækið náð góðum árangri á markaði vegna sérstöðu afurða fyrir­tækisins, enda hefur Kerecis einkaleyfa­varið tækni sína í yfir 50 löndum. Fyrir­tækið hefur fengið fjölda viðurkenninga á undan­förnum árum og árið 2017 hlaut fyrir­tækið Vaxtar­sprota ársins, sem það nýsköpunar­fyrirtæki sem óx hraðast á Íslandi. Samhliða aukinni markaðs­setningu hefur störfum hjá fyrir­tækinu fjölgað hratt og þar starfa núna yfir 50 manns við þróun, fram­leiðslu og sölu. Það er mat dómnefndar að Kerecis hafi þróað fram­úrskarandi afurð sem hafi alla burði til að ná árangri á markaði á næstu árum og sé vel að verð­laununum komið,“ segir í tilkynningu.

Nýsköpunar­verðlaun Íslands eru veitt af Rannís, Íslands­stofu, Nýsköpunar­miðstöð Íslands og Nýsköpunar­sjóði atvinnu­lífsins, til fyrir­tækja sem þykja hafa skarað fram úr í þróun nýrrar vöru eða þjónustu, sem byggð er á rann­sóknar- og nýsköpunar­starfi og náð hefur árangri á markaði. „Tilgangur verð­launanna er að vekja athygli á þeim mikilvægu tengslum sem eru á milli rannsókna og þekkingar­öflunar og aukinnar verðmæta­sköpunar í atvinnu­lífinu. Verðlauna­gripurinn er stytta af frjósemis­goðinu Frey eftir Hallstein Sigurðsson mynd­höggvara.

„Við val á verðlauna­hafa er litið til þess hvort um sé að ræða nýtt sprota­fyrirtæki, hvort það sé byggt á nýskapandi tækni og hugmynd og sé kröfuhart á þekkingu. Þá er lagt mat á virðis­auka afurða og hvort fyrir­tækið hafi náð árangri á markaði. Metið er hvort líkur séu á að fyrir­tækið haldi velli og hvort stjórnun nýsköpunar sé til eftir­breytni. Að lokum er metið hvort fyrir­tækið sé hvatning fyrir aðra að feta sömu slóð,“ segir í tilkynningu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár