Fór í frí og kemst ekki heim til sín

Guðmundur Ingi Jónsson alþjóða­viðskipta­fræðingur býr í borginni Haimen í Jinangsu-héraði á austur­strönd Kína. Hann fór þaðan til Filippseyja um miðjan janúar, í það sem átti að vera stutt frí, en vegna ýmissa ferða­takmarkana vegna COVID-19 faraldursins hefur hann ekki komist til síns heima og dvelur nú í Taílandi. Þar í landi tók útgöngu­bann gildi í gær.

Ströndin í Hua Hin í Taílandi
Ströndin í Hua Hin í Taílandi Fáir eru á ferli á strönd­inni, sem að öllu jöfnu iðar af lífi og fjöri. Útgöngu­bann gekk í gildi í Taílandi í dag. Mynd: Guðmundur Ingi Jónsson

Guðmundur Ingi Jónsson alþjóða­viðskipta­fræðingur hefur um tveggja ára skeið verið búsettur í borginni Haimen í Jiangsu-héraði á austur­strönd Kína þar sem hann kennir hagfræði og viðskipta­tengdar greinar. Hann fór þaðan til Filippseyja um miðjan janúar, í það sem átti að vera stutt frí.  Síðan þá hafa verið settar ýmsar ferða­takmarkanir til og frá Kína vegna útbreiðslu COVID-19 faraldursins og Guðmundur, sem hefur fært sig um set til Taílands, hefur ekki enn komist heim til sín og alls óvíst er hvenær af því verður.

Í dag gekk í gildi útgöngu­bann á Taílandi vegna faraldursins og þar er nú eingöngu veitt nauðsynleg þjónusta.

Ströndin í Hua Hin í TaílandiÞar sjást fáir á ferli. Útgöngu­bann sem nær yfir hluta sól­ar­hrings­ins tók gildi í land­inu í dag.

„Ég er í strandbæ sem heitir Hua Hin, það er heil­mikill Tenerife bragur hér og hingað kemur mikið af fólki frá Norður­löndunum,“ svarar Guðmundur spurður hvar hann sé.

Þar hefur hann verið undan­farnar fimm vikur og hefur getað sinnt starfi sínu í fjarvinnu hingað til, enda var skólanum sem hann starfar við lokað um tíma og fjar­kennsla tekin upp. 

Hefði þurft að fara í langa sóttkví á vegum yfirvalda 

Að störfumGuð­mundur Ingi hefur getað sinnt störfum sínum í Kína frá Taílandi í gegnum fjar­funda­búnað.

Hann segir að hann hafi valið að snúa ekki aftur til Kína að svo stöddu sé að þeir, sem koma inn í landið, þurfi að fara í nokkurra vikna sóttkví, stundum fleiri en eina, í húsnæði eða hóteli á vegum hins opinbera. „Það er talsvert annað fyrir­komulag á þessum málum í Kína en til dæmis í Evrópu. Skólinn sem ég kenni við hefði fyrst sett mig í sóttkví og síðan hefðu yfirvöld einnig gert það. Ég þekki dæmi um útlendinga sem búa í Kína og hafa þurft að vera í sóttkví á gistiheimilum eða hótelum á vegum ríkisins í margar vikur á eigin kostnað.“

Þegar tilkynnt var að skólinn sem hann starfar við yrði opnaður á nýjan leik um mánaða­mótin ákvað hann engu að síður að snúa aftur til Kína. Hann hugði á þá ferð um síðustu helgi, en tveimur dögum áður en hann ætlaði að láta verða af því var lokað fyrir allar komur útlendinga til landsins. Guðmundur hefur búið og starfað í Kína í nokkur ár, en hann segir að það skipti engu máli í þessu sambandi.

Sagt vera útlendingum að kenna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár