Diego Maradona sagður ætla að bjóða sig fram til embættis forseta FIFA

Diego Armando Maradona, einn þekktasti knattspyrnu­maður sögunnar, er sagður ætla að bjóða sig fram til embættis forseta alþjóða­knattspyrnu­sambandsins FIFA í forseta­kosningum sem framundan eru. Victor Hugo Morales, blaða­maður og rithöfundur frá Úrúgvæ, segir að Maradona hafi sagt sér þetta þegar hann hringdi í hann síðastliðið sunnudags­kvöld. Morales segir að Maradona hafi gefið sér leyfi til að segja frá áformunum opinber­lega. Frá þessu er greint á vef The Guardian.

Maradona, sem er 54 ára, er lifandi goðsögn í knattspyrnu­heiminum. Hann leiddi Argentínu til sigurs í heims­meistara­keppninni í knatt­spyrnu i Mexíkó árið 1986 þar sem hann skoraði meðal annars tvö mörk í átta liða úrslitum gegn Englandi. Annað markið skoraði hann með „hendi guðs“ og hitt eftir einhvern ótrúlegasta einleik sem sést hefur á stórmóti í knatt­spyrnu. Morales lýsti þeim leik og er vel þekktur í Suður- og Mið-Ameriku fyrir ótrúlega ástríðu­fulla lýsingu sína á síðari marki Maradona í þeim leik. Hægt er að sjá markið og heyra lýsingu Morales hér að neðan. Morales og Maradona stýrðu auk þess saman sjónvarps­þætti fyrir sjónvarpsstöð í Venesúela í fyrra­sumar, á meðan að heims­meistara­keppnin í Brasilíu stóð yfir.

https://www.youtube.com/watch?v=1wVho3I0NtU

Blatter hættir óvænt


Kosið verður um nýjan for­seta FIFA í lok þessa árs eða byrjun þess næsta. Þetta varð ljóst í byrjun júní­mán­aðar þegar Sepp Blatter, sem gegnt hefur emb­ætt­inu frá árinu 1998, til­kynnti að hann ætl­aði að hætta, fjórum dögum eftir að hann var end­ur­kjör­inn í umdeildum kosn­ingum og í skugga spill­ing­ar­mála. Á blaða­manna­fundi vegna þessa sagð­ist Blatter ætla að boða til nýs aðal­fundar þar sem þyrfti að kjósa nýjan for­mann, en það yrði ekki gert fyrr en á tíma­bil­inu milli des­em­ber á þessu ári og mars á næsta ári.

Í vikunni fyrir kosningarnar opinberaðist hvert spillingar­málið á fætur öðru tengt FIFA og ásýnd sambandsins beið mikinn skaða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár