„Hvar er heilbrigðisráðherra Framsóknarflokksins eiginlega?“

Þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að langt sé liðið á „fyrri hálf­leik“ hjá heil­brigð­is­ráð­herra og út úr liði hans streymi „lyk­il­leik­menn sem haldið hafa lið­inu á floti“.

Helga Vala Helgadóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar.
Helga Vala Helga­dóttir þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

„Hvar er heil­brigð­is­ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins eig­in­lega?“ spurði Helga Vala Helga­dóttir þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Hún svar­aði sjálf og sagði: „Það er bók­staf­lega ekk­ert að frétta. Eða jú, það er helst að frétta að það er ekk­ert verið að gera til að bæta það ófremd­ar­á­stand sem ríkt hefur í heil­brigð­is­kerf­inu síð­ast­liðin ár þrátt fyrir heil­brigð­is­starfs­fólk sem sífellt hleypur hraðar og hraðar.“

Bráða­hjúkr­un­ar­fræð­ingur á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans, Soffía Stein­gríms­dóttir, skrif­aði stöðu­upp­færslu á Facebook í gær­kvöldi sem vakið hefur mikla athygli en þar greinir hún frá ákvörðun sinni að segja upp störfum vegna langvar­andi álags og lélegs aðbún­aðar á deild­inni.

Helga Vala sagði í ræðu sinni að það sem helst væri að frétta varð­andi heil­brigð­is­mál væri að nú ætl­aði rík­is­stjórnin að einka­væða þjón­ustu við eldra fólk sem dvalið hefur á Víf­ils­stöðum í stað þess að fara í alvöru­heild­ar­upp­bygg­ingu á mjög svo brot­hættu heil­brigð­is­kerfi. Upp­bygg­ingu sem tæki til­lit til eft­ir­spurnar eftir nauð­syn­legri þjón­ustu, dreif­ingu þjón­ustu um landið, yfir­sýnar yfir mann­afla, hús­næði og fjár­muni.

„Eða jú, það er helst að frétta að það er búið að segja upp öllum hjúkr­un­ar­fræð­ingum sem sinnt hafa sím­svörun Lækna­vakt­ar­innar, sím­svörun sem hefur í raun verið bjarg­ráð heil­brigð­is­þjón­ustu hring­inn í kringum landið, sím­svörun þar sem not­endur heil­brigð­is­þjón­ustu og starfs­fólk hefur getað leitað ráða hjá færum sér­fræð­ingum með margs konar og yfir­grips­mikla þekk­ingu,“ sagði hún.

Fólkið í stúkunni farið að hvísla sín á milli að kominn sé tími á þjálfaraskipti

Helga Vala vildi nota lík­inga­mál sem Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra myndi skilja, en hann var á árum áður þjálf­ari í fót­bolta, og benda á að það væri langt liðið á fyrri hálf­leik hjá honum og út úr lið­inu streymdu lyk­il­leik­menn sem haldið hafa lið­inu á floti.

„Fólkið í stúkunni er farið að hvísla sín á milli að kom­inn sé tími á þjálf­ara­skipti, enda þol­in­mæðin lítil eftir slakt gengi á síð­asta kjör­tíma­bili. Það var ekki bara einn starfs­maður sem sagði upp á Land­spít­al­anum í gær, það var lyk­il­starfs­maður á bráða­mót­töku í Fossvogi sem sagði upp vegna langvar­andi álags og engrar lausnar í sjón­máli. Fleiri lyk­il­starfs­menn hyggja á brott­för af því að fólk fer heim af vakt­inni með nag­andi sam­visku­bit og eft­ir­sjá í boði rík­is­stjórn­ar­innar. Nei, þaðan er ekk­ert að frétta,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár