Nagar sig í handarbökin fyrir að hafa ekki spurt spurninga í fjárlaganefnd

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og nefnd­ar­maður í fjár­laga­nefnd seg­ist vera svekkt út af lista yfir kaup­endur Íslands­banka. Hún stóð í þeirri mein­ingu að verið væri fyrst og fremst að leita eftir stórum og öfl­ugum fjár­festum.

Bryndís Haraldsdóttir þingmaður Sjáflstæðisflokksins.
Bryndís Har­alds­dóttir þing­maður Sjá­fl­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Bryndís Har­alds­dóttir þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins seg­ist vera mik­ill stuðn­ings­maður þess að selja Íslands­banka en við­ur­kennir að hún hafi orðið svekkt þegar hún las lista yfir þá sem fengu að kaupa hlut í Íslands­banka í nýlegu útboði Banka­sýsl­unnar.

Þetta kom fram í máli þing­manns­ins undir liðnum störf þings­ins í morgun.

„Mér fannst það mik­il­vægt að ríkið ætti ekki tvo af þremur við­skipta­bönkum í land­inu. Þess vegna hef ég stutt það ferli ein­dregið. Mér fannst takast ofboðs­lega vel til í fyrsta útboð­inu þegar stór hluti Íslend­inga hafði tæki­færi til að setja sparnað sinn í fjár­fest­ingu í Íslands­banka. Ég held líka að það sé mik­il­vægt fyrir hluta­bréfa­markað á Íslandi að almenn­ingur hafi tök á að fjár­festa í eignum eins og Íslands­banka,“ sagði hún í upp­hafi ræðu sinnar.

Hélt að þau væru fyrst og fremst að leita eftir stórum og öflugum fjárfestum

Bryndís situr í fjár­laga­nefnd og sagð­ist hún þar af leið­andi hafa fengið allar þær upp­lýs­ingar og gögn sem þeim voru send varð­andi seinni hlut­ann.

„Ég verð að við­ur­kenna að ég er svekkt þegar ég les lista yfir þá sem hafa fengið að kaupa í þessu ferli. Ég stóð í þeirri mein­ingu að við værum fyrst og fremst að leita eftir stórum og öfl­ugum fjár­festum sem ætl­uðu að vera þarna til lengri tíma. Þegar ég fer svo að lesa gögnin þá átta ég mig á því að það er ekk­ert sem stendur þar beinum orðum að svo eigi að vera. Ég naga mig sjálfa í hand­ar­bökin fyrir að hafa ekki spurt þeirrar spurn­ingar og ég ímynda mér að við séum fleiri í þessum sal sem höfum gert það,“ sagði hún.

Þing­mað­ur­inn sagð­ist þó engu að síður sann­færð um að það væri rétt ákvörðun að selja Íslands­banka. „Ég er líka sann­færð um það, og það er mik­il­vægt að við þing­menn höldum því til haga, að reglu­verkið í kringum banka­kerfið okkar er gott og hefur tekið miklum breyt­ingum á síð­asta ára­tug. Það er hár­rétt ákvörðun hjá fjár­mála­ráð­herra að óska eftir því að Rík­is­end­ur­skoðun end­ur­skoði þetta ferli vegna þess að það er traust og trú­verð­ug­leiki sem skiptir mestu máli. Þegar við seljum rík­is­eignir þá þarf það ávallt að vera í gagn­sæju og sann­gjörnu og rétt­látu ferli og því miður höfum við ekki fengið svör við öllum okkar spurn­ingum. Það er því nauð­syn­legt að fjár­laga­nefnd, efna­hags- og við­skipta­nefnd og þingið allt fái svar við þeim spurn­ingum sem út af standa,“ sagði hún að lokum.

„Hvaða rugl er þetta?“

Guð­brandur Ein­ars­son þing­maður Við­reisnar og nefnd­ar­maður í fjár­laga­nefnd mót­mælti þessum orðum Bryn­dísar undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta nokkru seinna og sagði að hann yrði alltaf meira og meira hissa eftir því sem þessu máli vindur fram.

„Ég er bara mjög hissa á því að sjá hér nefnd­ar­menn í fjár­laga­nefnd koma hér upp og fleygja sér á sverðið. Við vorum aldrei beðin um það að semja reglur sem næðu utan um söl­una. Það var bara engin beiðni um það. Fyrir okkur var bara kynnt aðferð sem átti að nota sem kölluð er til­boðs­leið.

Það er búið að ákveða fyrir löngu síðan að ráð­herr­ann geti selt þennan banka. Við vorum bara beðin um álit á því. Punktur. En að hlusta á þessa umræðu hér að það eigi að fara að gera fjár­laga­nefnd og þingið að ein­hverjum söku­dólgi í mál­inu: Hvaða rugl er þetta?“ spurði Guð­brandur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár