Nýr vísindaráðherra Danmerkur telur guð hafa skapað heiminn og kallar svart fólk "negra"

Þegar Esben Lunde Larsen, sem var í síðustu viku skipaður nýr ráðherra menntunar og vísinda í Danmörku, var spurður af því í viðtali við Jyllands-Posten í síðustu viku hvort maðurinn væri kominn af öpum svaraði hann: „Ég held að það sé skapandi guð að baki því“. Hann sagðist hins vegar ekki hafa hugsað mikið út í það hvernig guð hafi farið að því að skapa manninn.

Larsen sagðist einnig vera þeirrar skoðunar að guð hefði skapað flest allt annað sem til er í heiminum. „Hvernig það var búið til er skýrt annars vegar í biblíunni og hins vegar með vísindum,“ sagði Larsen.

Ummælin hafa valdið miklu fjaðra­foki í Danmörku og margir gagn­rýnendur benda á að Larsen muni meðal annars hafa yfir­umsjón með rann­sóknum, vísindum og menntun. Það sé ótækt að maður sem hafni vísinda­legum skýringum á tilurð mannsins og heimsins alls sinni slíku starfi. Samfélags­miðlar hafa bókstaf­lega logað vegna málsins. Larsen, sem er frá svæði nálægt Rinkøbing, sem oft er nefnt danska biblíu­beltið, er strang­trúaður.

Í umfjöllun Politiken um málið hafa viðmælendur bent á að ráðherra vísinda geti ekki aðhyllst sköpunar­kenninguna. Í því felist svo mikil þversögn að hún sé ekki boðleg. Kristeligt Dagblad tekur hins vegar upp hanskann fyrir Larsen og segir gagn­rýnina á hann vera ómaklega. Hún sýni fram á mikla vanþekkingu gagn­rýnenda á bæði mótmælendatrú og hinu vísinda­lega samfélagi.

Sýnd mynd af Adam og Evu og apa


Í gær mætti Larsen svo í sjón­varps­við­tal hjá danska rík­is­út­varp­inu, DR. Þar sýndi spyrill­inn honum mynd af Adam og Evu ann­ars vegar og apa hins vegar og bað ráð­herr­ann um að segja áhorf­endum hvor myndin væri af for­feðrum manns­ins. Larsen lenti í tölu­verðum vand­ræðum með að svara spurn­ing­unni með skýrum hætti. Hægt er að sjá upp­töku af við­tal­inu hér.

Larsen hefur svarað fyrir ásakanirnar víðar undan­farna daga. Í skriflegu svari til vefsins videnskab.dk, sem birt var í gær, segist hann aldrei hafa litið á sig sem sköpunar­sinna. Þar segir hann að hafi einhver hafi þá skoðun að guð hafi skapað heiminn þá sé það trú, ekki vísindi. Hann segir þróun heimsins frá stóra hvelli hins vegar vera vísinda­lega staðreynd.

Vill kalla svart fólk "negra"


Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Larsen lendir í vand­ræðum fyrir ummæli sín í við­tölum við Jyllands-Posten. Í jan­úar 2014 sagði hann við blaðið að hann vildi kalla svart fólk „negra“. Það væri orð sem hann teldi að næði rétti­lega yfir kyn­þátt þeirra sem væru svartir á hör­und. Auk þess vildi Larsen með þessu mót­mæla því sem hann kall­aði pólítíska rétt­hugsun.

Larsen vildi hins vegar ekki svara því í viðtalinu hvort hann myndi tala um Barack Obama, forseta Banda­ríkjanna, sem fyrsta „negrann“ til að gegna því starfi.

Sökum þess hversu umdeilur Larsen er þá vakti það töluverða athygli þegar Lars Løkke Rasmussen, nýr forsætis­ráðherra Danmerkur, ákvað að gera hann að ráðherra í nýrri minnihluta­stjórn sinni í lok júní. Sérstak­lega þar sem stjórn hans er veik og þarf að treysta mjög á stuðning annarra flokka á þingi við að koma stefnu­málum sínum í gegn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár