SÞ: Indland verður fjölmennasta land heims fyrr en áður var talið

Indland verður líklegast fjölmennasta land heims árið 2022, samkvæmt nýrri mannfjöldaspá Sameinuðu þjóðanna. Fyrri spár gerðu ráð fyrir að mann­fjöldinn á Indlandi myndi taka fram úr mann­fjölda í Kína árið 2028. Löndin tvö eru þau fjölmennustu í heiminum. Íbúa­fjöldi í Kína er í dag um 1,38 milljarður en 1,31 milljarður á Indlandi býr á Indlandi.

Í umfjöllun New York Times um málið segir að þótt lýðfræðingar hafi lengi vitað að Indland myndi taka fram úr Kína, þá bjuggust þeir ekki við að það myndi gerast svo fljótt. Búist er við að eftir sjö ár verði 1,4 milljarður manna í báðum löndunum. Þá muni Indland taka fram úr og því er spáð að íbúa­fjöldinn verði 1,5 milljarður árið 2030 og 1,7 milljarður árið 2050. Búist er við að mann­fjöldinn verði stöðugri í Kína en dragist lítillega saman frá 2030.


Samkvæmt skýrslu Sameinuðu þjóðanna er íbúa­fjöldi heimsins í dag 7,3 milljarðar. Því er spáð að mann­fólkið verði 9,7 milljarðar talsins árið 2050, lítillega fleiri en gert var ráð fyrir í síðustu mannfjöldaspá frá 2013. Mann­fjöldinn gæti orðið 11,2 milljarða fyrir lok aldarinnar. Helmingur fjölgunarinnar mun eiga sér stað í aðeins níu löndum, gangi spáin eftir. Þau eru Indland, Nígería, Pakistan, Kongó, Eþíópía, Tansanía, Bandaríkín, Indónesía og Úganda. Í nokkrum ríkjum Evrópu er spáð yfir 15 prósent fólks­fækkun til 2050.


Fram kemur í skýrslunni að lífslíkur hafi aukist verulega á síðustu árum. Alþjóð­lega mælast lífslíkur karlmanna 68 ár og lífslíkur kvenna er 73 ár. Það er þremur og fjórum árum lengur en um aldamótin. Ísland er í hópi þeirra landa þar sem lífslíkur eru hvað lengstar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár