Hóf ferilinn sem frjálslyndur demókrati en leiðir nú Íhaldsflokkinn

Verðandi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands og nýr leið­togi Íhalds­flokks­ins var frjáls­lyndur demókrati á náms­ár­unum og kaus gegn útgöngu Bret­lands í Evr­ópu­sam­band­inu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu, en skipti svo um skoðun. En hver er Liz Truss?

Mary Elizabeth Truss verður nýr forsætisráðherra Bretlands og þriðja konan í sögunni sem gegnir því embætti.
Mary Elizabeth Truss verður nýr for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands og þriðja konan í sög­unni sem gegnir því emb­ætti. Mynd: EPA

Mary Elizabeth Truss verður nýr for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands frá og með morg­un­deg­inum. Það varð ljóst eftir að hún bar sigur úr býtum í leið­toga­kjöri Íhalds­flokks­ins gegn Rishi Sunak, fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra Bret­lands, sem sagði af sér emb­ætti í aðdrag­anda afsagnar Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra í júlí.

[links]Óhætt er að full­yrða að Truss var ekki fyrsta val flokks­manna Íhalds­flokks­ins eftir að Boris Johnson sagði af sér í kjöl­far fjölda hneyksl­is­mála. Eftir fimm umferðir af atkvæða­greiðslu þar sem fram­bjóð­endum var fækkað úr átta í tvo stóð valið á milli Truss og Sunak og sigur hennar var í raun aldrei í hætti, þó mun­ur­inn hafi verið minni en spár gerðu ráð fyrir.

Truss fékk 57 pró­sent atkvæða. 172.437 voru með kosn­inga­rétt í kjör­inu, rúm­lega þrettán þús­und fleiri en í leið­toga­kjör­inu 2019 þegar Boris Johnson var kjör­inn. Það gefur vís­bend­ingu um fjölda flokks­manna en Íhalds­flokk­ur­inn er eini stjórn­mála­flokk­ur­inn í Bret­landi sem gefur ekki reglu­lega út fjölda flokks­manna. Miðað við þessar upp­lýs­ingar hefur flokks­mönnum fjölgað en þeir voru 159.320 árið 2019.

En hver er Liz Truss?

Ung Liz hefði lík­lega ekki gert sér í hug­ar­lund að hún ætti síð­ar­meir eftir að ganga inn um dyr númer tíu í Downingstræti sem for­sæt­is­ráð­herra. Það verður hins vegar raunin, frá og með morg­un­deg­inum, þegar Elísabet II Eng­lands­drottn­ing mun form­lega skipa hana sem for­sæt­is­ráð­herra. Truss verður þriðja konan sem gegnir emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra í sögu Bret­lands, á eftir Margaret Thatcher og Theresu May.

Mary Elizabeth Truss er 47 ára, fædd 26. júlí 1975. Hún er elst fjög­urra systk­ina og ólst upp á heim­ili frjáls­lyndra demókrata. Faðir hennar var pró­fessor í stærð­fræði og móðir hennar hjúkr­un­ar­fræð­ingur. Truss fædd­ist í Oxford en fjög­urra ára gömul flutti fjöl­skyldan til Paisly, í nágrenni við Glasgow. Fjöl­skyldan flutti síðar til Leeds.

Mótmælti aðgerðum Thatcher en lýsir henni síðar sem fyrirmynd

Priscilla, móðir Truss, barð­ist ötul­lega fyrir afvopna­væð­ingu kjarn­orku og Truss var ekki há í loft­inu þegar hún fór með móður sinni í „ban the bomb“-göngur þar sem hún kyrj­aði slag­orð sem beindust gegn Margaret Thatcher, sem hún hefur í seinni tíð lýst sem fyr­ir­mynd hennar í stjórn­málum.

Truss lýsir for­eldrum sínum sem „til vinstri við Verka­manna­flokk­inn“. Móðir hennar hafi þó stutt bar­áttu hennar í leið­toga­kjöri Íhalds­flokks­ins en hún er ekki viss hvort faðir hennar muni nokkurn tím­ann greiða henni atkvæði.

Truss stund­aði nám í heim­speki, hag­fræði og stjórn­mála­fræði við Merton-háskól­ann sem heyrir undir Oxford-háskól­ann. Á náms­ár­unum var hún virk í stúd­entapóli­tík­inni fyrir Frjáls­lynda demókrata þar sem hún gegndi for­mennsku og lagði til að kon­ungs­stjórnin yrði lögð niður. „Við, frjáls­lyndir demókratar, trúum því ekki að fólk sé fætt til að stjórna,“ sagði Truss í ræðu á lands­fundi Frjáls­lyndra demókrata árið 1994.

Ekki leið á löngu þar til hún sagði skilið við flokk­inn og söðl­aði um yfir til Íhalds­flokks­ins. Hún hefur lýst tíma­bili sínu sem frjáls­lyndur demókrati sem mis­tökum á hennar yngri árum. „Sumir stunda kyn­líf, nota eit­ur­lyf og hlusta á rokk, ég var frjáls­lyndur demókrati. Fyr­ir­gefið,“ sagði Truss á fram­boðs­fundi í sumar.

Að loknu námi starf­aði hún í bók­haldi hjá Shell og síðar hjá fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Cable & Wireless þar sem hún kynnt­ist Hugh O'Leary. Þau gengu í hjóna­band árið 2000 og eiga tvö börn sem eru nú á tán­ings­aldri.

Umhverfis-, dómsmála- og utanríkisráðherra

Truss reyndi fyrst að kom­ast á þing árið 2001. Hún náði ekki kjöri og heldur ekki árið 2005. Fyrir þing­kosn­ing­arnar 2010 var hún á svoköll­uðum A-lista David Cameron, þáver­andi leið­toga Íhalds­flokks­ins, sem sam­an­stóð af Íhalds­mönnum sem hann vildi gjarnan að næðu kjöri. Truss bauð sig fram í Suð­vestur Norfolk, þar sem talið var að Íhalds­flokk­ur­inn ætti öruggt sæti, og það reynd­ist rétt.

Ráð­herra­fer­ill Truss hófst árið 2012 þegar hún varð und­ir­ráð­herra í mennta­mála­ráðu­neyt­inu. Tveimur árum síðar varð hún umhverf­is­ráð­herra og árið 2016 varð hún dóms­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn Theresu May. Truss vakti athygli í umræðu um útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu og kaus hún gegn Brexit í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sum­arið 2016 þar sem hún tal­aði fyrir mik­il­vægi þess að vera hluti af sam­eig­in­legum mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins.

Truss skipti fljót­lega um skoðun eftir að nið­ur­staðan var ljós og sá hag sinn í því að fylgja Boris Johnson þegar hann tók við sem leið­togi árið 2019 og var hún meðal þeirra fyrstu sem studdu hann sem leið­toga Íhalds­flokks­ins. Truss gegndi emb­ætti utan­rík­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Johnson en þarf nú að finna nýjan í það emb­ætti þegar hún tekur við sem for­sæt­is­ráð­herra.

Nýkjörnum for­sæt­is­ráð­herra ber ekki að boða til kosn­inga en hefur þó vald til að gera svo. Kosn­ingar verða í síð­asta lagi í jan­úar 2025. Truss full­yrti í sig­ur­ræðu sinni í dag að áætlað sé að næstu þing­kosn­ingar fari fram 2024.

Boðar skattalækkanir og aðgerðir vegna hækkandi orkuverðs

Truss bíður vanda­samt verk sem for­sæt­is­ráð­herra en hún hyggst bregð­ast við verð­bólgu, hækk­andi orku­verði og öðrum efna­hags­á­skor­unu með því að kynna áætlun síðar í vik­unni sem felst að öllum lík­indum í fryst­ingu orku­reikn­inga. Þá hefur hún lofað að lækka skatta.

Truss heldur til Skotlands í fyrra­málið þar sem Elísabet Eng­lands­drottn­ing dvelur þessa dag­ana. Þar mun drottn­ingin skipa Truss form­lega í emb­ætti og er það í fyrsta sinn í 70 ára valda­tíð drottn­ing­ar­innar sem hún skipar for­sæt­is­ráð­herra, sem er sá fimmt­ándi frá því að hún tók við völdum, ann­ars staðar en í Buckingham-höll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Truss

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár