Liz Truss segir af sér sem forsætisráðherra Bretlands

For­sæt­is­ráð­herra Bret­lands hefur sagt af sér emb­ætti eftir aðeins sex vikur í emb­ætti. Enginn for­sæt­is­ráð­herra hefur setið skemur á for­sæt­is­ráð­herra­stóli í sögu Bret­lands.

Liz Truss hefur sagt af sér sem forsætisráðherra Bretlands. Aðeins eru um sex vikur síðan hún tók við embætti.
Liz Truss hefur sagt af sér sem for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Aðeins eru um sex vikur síðan hún tók við emb­ætti. Mynd: EPA

Liz Truss hefur sagt af sér emb­ætti sem for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands og sem for­maður Íhalds­flokks­ins.

Truss greindi frá afsögn sinni á blaða­manna­fundi fyrir utan Downingstræti 10 rétt eftir hádegi. Í yfir­lýs­ingu sinni sagð­ist hún ekki hafa getað starfað eftir því umboði sem flokks­menn Íhalds­flokks­ins veittu henni í haust. Hún hefur til­kynnt Karli þriðja kon­ungi um afsögn sína.

Dagarnir 45 sem Truss hefur verið í emb­ætti hafa verið storma­samir. Umdeildar efna­hags­að­gerðir, kynntar af Kwasi Kwarteng fjár­mála­ráð­herra, sem fólust í skatta­lækk­unum sem fjár­magna átti með lánum féllu í grýttan jarð­veg, bæði hjá almenn­ingi og mark­aðnum, og svo fór að Kwarteng var lát­inn víkja og Jeremy Hunt, fyrr­ver­andi heil­birgðis- og utan­rík­isáð­herra, tók við sem fjár­mála­ráð­herra.

Ekki útilokað að Boris Johnson snúi aftur

Boðað verður til atkvæða­greiðslu um kjör nýs for­manns Íhalds­flokks­ins innan viku og mun Truss starfa áfram sem for­sæt­is­ráð­herra þangað til. Hunt hefur þegar greint frá því að hann ætli ekki að sækj­ast eftir því verða næsti leið­togi Íhalds­flokks­ins og þar með for­sæt­is­ráð­herra.

[adspot]Graham Brady, for­maður 1922-nefndar Íhalds­flokks­ins, sem sér um helstu for­yst­u­­­­mál Íhalds­­­­­­­flokks­ins, segir í sam­tali við BBC að búast megi við að ljóst verði hver muni taka við af Truss sem leið­togi Íhalds­flokks­ins á föstu­dag­inn í næstu viku.

Forveri Truss í emb­ætti, Boris Johnson, sem sagði af sér í sumar eftir röð hneyksl­is­mála, gæti sóst eftir því að snúa aftur sem leið­togi Íhalds­flokks­ins. Bæði Times og Daily Tel­egraph segj­ast hafa heim­ildir fyrir því að Johnson sýni því áhuga. Times segir að Johnson telji það, að hann snúi aftur sem for­sæt­is­ráð­herra, snú­ast um hags­muni þjóð­ar­innar. Ekki liggur fyrir hvernig leið­toga­kjör­inu verður nákvæm­lega háttað. Þá gæti það skipt máli að Johnson sætir enn rann­sóknar vegna Par­tygate-hneyksl­is­ins svo­kall­aða. Rann­sókn­ar­nefnd á vegum breska þings­ins rann­sakar enn hvort John­­son hafi vís­vit­andi afvega­­leitt þing­­menn í umræðum um sam­­kvæmi sem haflin voru á tímum strangra sótt­­varna­reglna.

Var staðráðin í að gefast ekki upp

Truss er þriðja konan sem gegnir emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra í sögu Bret­lands. Hún hafði betur gegn Rishi Sunak í leið­toga­kjöri flokks­ins í sept­em­ber. Í þakk­ar­ræðu sinni sem hún flutti þegar hún náði kjöri sagði hún það mik­inn heiður að vera kjör­inn leið­togi Íhalds­flokks­ins.

[links]Átta sótt­ust eftir að leiða flokk­inn eftir að Boris John­son sagði af sér í byrjun júlí. Eftir nokkrar lotur atkvæða­greiðsla stóð valið á milli Truss og Sunak. Fyr­ir­fram var búist við sigri Truss, sem þótti þó ekki lík­legur sig­ur­veg­ari þegar kosn­inga­bar­áttan hófst í sumar. Sunak þykir lík­legur til að sækj­ast eftir því að leiða flokk­inn nú þegar Truss hefur sagt af sér.

Elísabet Eng­lands­drott­ing skip­aði Truss í emb­ætti 6. sept­em­ber og var það meðal hennar síð­ustu opin­beru emb­ætt­is­verka áður en hún féll frá tveimur dögum seinna. Ljóst var að Truss átti vanda­samt hlut­verk fyrir höndum og héldu stjórn­mála­skýrendur því fram að nýr for­sæt­is­ráð­herra hafi ekki tekið við á jafn erf­iðum tímum síðan Marg­aret Thatcher varð for­sæt­is­ráð­herra árið 1979.

Í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á breska þing­inu í gær sagð­ist Truss ætla að halda ótrauð áfram þrátt fyrir þá miklu gagn­rýni sem hún hefur sætt. „Ég er bar­áttu­kona og ég gefst ekki upp. Allt sem ég hef gert er með það að leið­ar­ljósi að styrkja efna­hags­lífið,“ sagði Truss. Í dag var hljóðið annað, þegar Truss, til­kynnti afsögn sína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Truss

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár