Liz Truss nýr forsætisráðherra Bretlands

Liz Truss verður nýr for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands eftir að hún hafði betur gegn Rishi Sunak í leið­toga­kjöri Íhalds­flokks­ins. Stórar áskor­anir blasa við, ekki síst hækk­andi orku­verð og hyggst Truss kynna áætlun sína til að bregð­ast við því í vik­unni.

Liz Truss er nýr forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Íhaldsflokksins.
Liz Truss er nýr for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands og leið­togi Íhalds­flokks­ins. Mynd: EPA

Liz Truss, utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands, er nýr leið­togi breska Íhalds­flokks­ins og þar með nýr for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Truss hafði betur gegn Rishi Sunak í leið­toga­kjöri flokks­ins með 81.326 atkvæðum gegn 60.399 atkvæðum. Kjörsókn var 82,6 pró­sent. Graham Brady, for­maður 1922-­­­nefndar Íhalds­­­flokks­ins, sem sér um helstu for­yst­u­­­mál Íhalds­­­­­flokks­ins, greindi frá nið­ur­stöðum leið­toga­kjörs­ins skömmu fyrir hádegi.

Truss verður þriðja konan sem gegnir emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra í sögu Bret­lands. Hún hóf þakk­ar­ræðu sína á að segja það mik­inn heiður að vera kjör­inn leið­togi Íhalds­flokks­ins. Átta sótt­ust eftir að leiða flokk­inn eftir að Boris Johnson sagði af sér í byrjun júlí. Eftir nokkrar lotur atkvæða­greiðsla stóð valið á milli Truss og Sunak. Fyr­ir­fram var búist við sigri Truss, sem þótti þó ekki lík­legur sig­ur­veg­ari þegar kosn­inga­bar­áttan hófst fyrir um tveimur mán­uðum.

Truss þakk­aði Íhalds­flokknum fyrir „að skipu­leggja eitt lengsta atvinnu­við­tal sög­unnar“. Þá þakk­aði hún Boris Johnson fyrir að standa uppi í hár­inu á Valdimír Pútín Rúss­lands­for­seta, leiða Bretland úr Evr­ópu­sam­band­inu og fyrir að hafa komið bólu­efni gegn kór­ónu­veirunni til almenn­ings. Auk þess þakk­aði hún Johnson fyrir að hafa „malað Jeremy Corbyn“.

Í færslu á Twitter þakk­aði Truss fyrir traustið sem henni er sýnt og heitir hún að grípa til stór­tækra aðgerða til að koma Bret­landi í gegnum erf­iða tíma.

Ljóst er að Truss á vanda­samt hlut­verk fyrir höndum og hafa stjórn­mála­skýrendur haldið því fram að nýr for­sæt­is­ráð­herra hafi ekki tekið við á jafn erf­iðum tímum síðan Margaret Thatcher varð for­sæt­is­ráð­herra árið 1979.

Hækkandi orku­verð er meðal helstu áskor­ana sem rík­is­stjórnin stendur frammi fyrir og meðal fyrstu verk­efna rík­is­stjórn­ar­innar undur for­ystu Truss verður að kynna áætlun um að bregð­ast við hækk­andi orku­verði. Líklegt er talið að Truss muni til­kynna áform sín á fimmtu­dag sem munu meðal ann­ars fel­ast í fryst­ingu á orku­reikn­ingum.

Hneyksli eftir hneyksli leiddi til afsagnar Johnson – og sigurs Truss

Helsta verk­efni Truss innan flokks­ins verður að sam­eina hann eftir mikla umróta­tíma.

Boris Johnson sagði af sér sem leið­togi Íhalds­flokks­ins 7. júlí eftir röð ýmissa hneyksl­is­mála, ekki síst „Par­tygate“ þar sem John­son og starfs­menn hans í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu urðu ítrekað upp­vísir að því að brjóta reglur um sam­komu­tak­mark­anir sem rík­is­stjórnin hafði gert bresku þjóð­inni að fylgja til að halda drykkju­sam­kvæmi, fór langt með að ýta John­son út af svið­inu. John­son var meðal ann­ars sektaður fyrir að vera við­staddur eina veisl­una, eigin afmæl­is­veislu, og varð með því fyrsti for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands frá upp­hafi til að verða sektaður fyrir lög­brot.

Johnson stóð af sér van­traust­s­til­lögu í byrjun júní, en ein­ungis með naum­indum og því þótti ljóst í hvað stefndi. Alls 148 þing­menn breska Íhalds­flokk­inn studdu til­lög­una en 211 greiddu atkvæði á móti henni. Það þýddi að ein­ungis um 60 pró­sent þing­manna studdu ráð­herr­ann, þar með talið þeir sem áttu allt vald sitt innan rík­is­stjórnar undir hon­um.

Sunak sagði af sér sem fjár­mála­ráð­herra í júlí og var í hópi um 50 emb­ætt­is­manna og ráð­herra sem sögðu af sér þar sem þeir treystu Johnson ekki til að leiða landið. Hann greindi svo fljót­lega eftir afsögn Johnson að hann ætl­aði að sækj­ast eftir því að leiða Íhalds­flokk­inn.

[links]Meðlimir Íhalds­flokks­ins voru með kosn­inga­rétt í leið­toga­kjör­inu og var það því í höndum 0,3 pró­sent bresku þjóð­ar­innar að kjósa næsta for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands.

Í fyrsta sinn sem drottning skipar nýjan forsætisráðherra utan Buckingham-hallar

Atkvæða­greiðslu flokks­manna lauk síð­degis á föstu­dag en Graham Brady, for­maður 1922-nefnd­ar­innar, greindi frá sigri Truss skömmu fyrir hádegi. Truss mun form­lega taka við á morgun, þriðju­dag, og verður það í fyrsta sinn sem Elísabet Eng­lands­drottn­ing, í 70 ára valda­tíð sinni, skipar nýjan for­sæt­is­ráð­herra ann­ars staðar en við Buckingham-höll. Drottn­ingin dvelur nú í Balmoral-kast­ala í Skotlandi ásamt fjöl­skyldu sinni líkt og venjan er yfir sum­ar­mán­uð­ina og fram á haust.

Nýr leið­togi Íhalds­flokks­ins og Johnson, frá­far­andi leið­togi, munu því gera sér um 1.600 kíló­metra ferð til drottn­ing­ar­innar svo nýr for­sæt­is­ráð­herra geti form­lega tekið við völdum. Áður en að því kemur er búist við að Johnson muni flytja kveðju­ávarp fyrir utan Downingstræti 10 í fyrra­málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár