Núll komma þrjú prósent sem öllu ráða

Eftir tæpan mánuð kemur í ljós hver verður næsti for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Liz Truss hefur for­ystu í skoð­ana­könn­unum. Hópurinn sem hefur atkvæð­is­rétt í for­manns­kjöri Íhalds­flokks­ins er nokkuð frá­brugð­inn hinum almenna kjós­anda, að með­al­tali.

Talið er að hátt í 200 þúsund manns hafi atkvæðisrétt í formannsslag Íhaldsflokksins, eða sem nemur 0,3 prósentum af bresku þjóðinni.
Talið er að hátt í 200 þús­und manns hafi atkvæð­is­rétt í for­manns­slag Íhalds­flokks­ins, eða sem nemur 0,3 pró­sentum af bresku þjóð­inni. Mynd: EPA

Í upp­hafi sept­em­ber­mán­aðar kemur í ljós hvort það verður Rishi Sunak eða Liz Truss sem tekur við for­mennsku í breska Íhalds­flokknum af Boris Johnson og þá um leið emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra lands­ins.

Einungis brota­brot bresku þjóð­ar­innar getur haft ein­hver áhrif á það hvort þeirra flyst í Downing-stræti 10 og leiðir bresku rík­is­stjórn­ina fram að næstu þing­kosn­ingum, eða þau rúmu 0,3 pró­sent lands­manna sem skráð eru í Íhalds­flokk­inn.

Íhalds­flokk­ur­inn gefur ekki upp hversu margir félagar eru, en talið er að á bil­inu 160-200 þús­und manns séu á kjör­skrá flokks­ins í for­mannsval­inu.

Allir sem höfðu verið með­limir í flokknum í þrjá mán­uði er boðað var til leið­toga­kjörs­ins fá að greiða atkvæði og eru atkvæða­seðlar þegar byrj­aðir að ber­ast inn um bréfalúgur flokks­fé­laga.

Atkvæðum þarf að skila í síð­asta lagi 2. sept­em­ber og úrslit eiga svo að liggja fyrir þann 5. sept­em­ber.

Eldri, ríkari og hvítari en Bretar almennt

En hverjir eru það sem eru í Íhalds­flokknum og fá að velja þann for­sæt­is­ráð­herra sem setið gæti í emb­ætti allt til árs­ins 2025, er næstu þing­kosn­ingar eru áætl­aðar?

Fræði­menn við Queen Mary-háskóla í London hafa á und­an­förnum árum unnið að því að kort­leggja félaga­tal breskra stjórn­mála­flokka í rann­sóknum sínum.

Samkvæmt nið­ur­stöðum þeirra, sem eru frá árinu 2020, voru þeir sem skráðir voru í Íhalds­flokk­inn að með­al­tali eldri, rík­ari og hvít­ari en Bretar almennt, en hið sama á raunar við um skráða félaga í öðrum helstu stjórn­mála­flokkum lands­ins, Verka­manna­flokknum, Frjáls­lynda demókra­ta­flokknum og Skoska þjóð­ar­flokknum.

[adspot]

Með­al­aldur félaga í Íhalds­flokknum var hæstur allra flokka og voru 58 pró­sent félaga 50 ára eða eldri og 39 pró­sent voru orðin 65 ára. Tölu­verður kynja­halli var einnig í félaga­tali Íhalds­flokks­ins, en 63 pró­sent félaga voru karlar.

Þá voru um 97 pró­sent félaga í Íhalds­flokknum hvít á hör­und, sem er svipað hlut­fall og í öðrum stjórn­mála­flokkum lands­ins, en nokkuð á skjön við sam­fé­lagið almennt, en um 86 pró­sent íbúa í Bret­landi eru hvít.

Grasrót Íhalds­flokks­ins er síðan tölu­vert lík­legri til þess að búa í höf­uð­borg­inni London eða ann­ars­staðar í suð­ur­hluta lands­ins en lands­menn almennt, en 56 pró­sent flokks­manna búa á þeim slóðum.

Um 80 pró­sent flokks­manna til­heyra svo mið­stéttum, en ein­ungis um 20 pró­sent verka­manna­stétt, sam­kvæmt nið­ur­stöðum frá rann­sak­endum við Queens Mary-háskól­ann. Heilt yfir telj­ast um 57 pró­sent Breta til mið­stéttar, sam­kvæmt opin­berum gögnum.

Almenningur almennt ekki að kalla eftir skattalækkunum

Mikið púður hefur farið í það í for­manns­slagnum að ræða um skatta­mál og hafa bæði Sunak og Truss sett fram þá sýn að þau vilji lækka skatta ef þau kom­ist í stól for­sæt­is­ráð­herra. Truss, sem sam­kvæmt skoð­ana­könn­unum er tals­vert lík­legri til að verða næsti for­maður, hefur verið stór­tæk­ari í þeim efnum.

Skoð­ana­könnun sem var til umfjöll­unar á síðum blaðs­ins Observer á dög­unum sýnir þó að þrátt fyrir að for­manns­efnin tvö telji lof­orð um skatta­lækk­anir vera lík­leg til þess að höfða til þeirra sem hafa atkvæð­is­rétt í for­manns­kjöri Íhalds­flokks­ins er síður en svo ákall um lægri álögur á meðal bresks almenn­ings.

Um 22 pró­sent segja að rétt væri að lækka skatta og verja minna fé í opin­bera þjón­ustu, á meðan að 26 pró­sent segja að auka ætti skatt­heimtu til þess að fjár­magna opin­bera þjón­ustu. Rúmur þriðj­ungur, eða 34 pró­sent svar­enda, voru á því máli að skatt­heimta ætti að hald­ast óbreytt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár