Aftur hrun á hlutabréfamörkuðum í Kína - 6,4 prósent fall við opnun

SCI (Shanghai Composite Index) vísitala hlutabréfa­markaðarins í Kína lækkaði um 6,4 prósent þegar viðskipti hófust nú fyrir skömmu. Þetta kemur í kjölfar mikilla lækkana á markaðnum; ríflega fimm prósent á föstudag og 8,5 prósent í gær, 24. ágúst. Auk þess lækkuðu flestar vísitölur hlutabréfa­markaða í heiminum, Dow Jones vísitalan bandaríska um 3,57 prósent og FTSE vísitalan breska um 4,7 prósent, svo dæmi séu tekin.

Öll ávöxtun hlutabréfa­markaðarins í Kína á árinu er nú horfin, og gott betur, þrátt fyrir að markaðurinn hafi nærri þrefaldast á einungis þriggja mánaða tímabili, frá mars til júní.

Fjár­festar virðast óttast efnahags­erfiðleika í Kína, sem veldur því að þeir selja hlutabréf og færa í aðra eigna­flokka.


Breaking: China shares open down 6.4% as global markets brace for another bruising day http://t.co/5xQPDPcm8q


— Wall Street Journal (@WSJ) August 25, 2015

Alþjóða­markaðir hafa einkennst af miklum lækkunum að undan­förnu og virðist óttinn um að kínverska hagkefið sé að fara í gegnum mikla niður­sveiflu, vera rótin að vantraustinu.

Eins og fram kom í frétta­skýringu Kjarnans í gær, 24. ágúst, var titringur töluverður á mörkuðum og var þar meðal annars haft eftir Michelle Fleury, blaðakonu BBC í New York, að margir óttuðust að glundroði (panic) væri ekki svo langt undan á mörkuðum, með tilheyrandi ójafnvægi og gengdar­lausu tapi margra fjárfesta.

En eins og jafnan þegar hlutabréfa­markaðir eru annars vegar, þá er erfitt að sjá fyrir hvernig framvinda mála verður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár