Hjúkrunarfræðingi frá Íslandi hrósað fyrir snör handtök eftir hræðilegt bílslys í Danmörku

46 ára þýskur karla­maður liggur þungt haldinn í lífshættu eftir alvarlegt bílslys við bæinn Gråsten á Jótlandi í gær. Lögreglu­yfirvöld þakka vegfarendum sem komu að slysinu fyrir snör handtök á slysstað, og þá sérstak­lega ungri íslenskri konu sem var á meðal þeirra, sem er hjúkrunar­fræðingur að mennt. Danski frétta­miðillinn Jydske Vestkysten greinir frá málinu á vefsíðu sinni.

Tveir fólks­bílar skullu saman á Krusåvej skammt frá Gråsten. Í öðrum bílnum voru tveir Þjóð­verjar og dönsk hjón í hinum, kona á sjötugsaldri og karlmaður á sextugsaldri. Bílarnir skullu saman þegar Þjóð­verjarnir reyndu fram­úrakstur. Fjór­menningarnir slösuðust allir í árekstrinum, fjórir sjúkra­bílar voru sendir á vettvang, en þá sátu tveir farþegar fastir í bílunum. Tækjabíll var notaður til að skera þá lausa, en þá höfðu hinir tveir farþegarnir verið fjar­lægðir úr bílunum við illan leik.

Íslenskur hjúkrunarfræðingur tók við stjórninni á slysstað


Eins og áður greinir er annar Þjóð­verj­inn í lífs­hættu eftir slysið en landi hans, 52 ára karl­maður sem ók bílnum, er alvar­lega slas­aður en þó ekki í lífs­hættu. Þá er danska konan sömu­leiðis alvar­lega slösuð, en eig­in­maður hennar slas­að­ist minna.

Danski frétta­miðillinn hefur eftir yfirmanni hjá lögreglunni í Gråsten að viðbrögð vegfarenda á slys­staðhafi skipt sköpum. „Þegar við komum á vettvang voru tíu til tólf vegfarendur á vettvangi sem voru að huga að hinum slösuðu,“ segir lögreglu­maðurinn Erik Lindholdt í samtali við Jydske Vestkysten. „Þeim var stjórnað af ungri konu, hjúkrunar­fræðingi frá Íslandi, sem stóð sig stórkost­lega. Hún var ekki fyrst á vettvang en skipulagði björgunar­starfið og bjargaði þar með því sem bjargað varð. Allir sem voru á staðnum eiga mikið lof skilið, þeirra framlag kann að hafa skipt sköpum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár