Þekkir „verkjafangelsisofbeldið“ á biðlista af eigin raun

Þing­maður Flokks fólks­ins segir að mann­rétt­indi, jafn­rétti og jafn­ræði þeirra sem veikj­ast hér á landi og þurfi að bíða á biðlista séu fótum troðin – og beri rík­is­stjórn­inni „að stöðva þetta ofbeldi strax“.

Guðmundur Ingi Kristinsson þingmaður Flokks fólksins.
Guð­mundur Ingi Krist­ins­son þing­maður Flokks fólks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Ingi Krist­ins­son þing­maður Flokks fólks­ins segir að það að bryðja 15 til 20 töflur á dag á biðlista eftir aðgerðum svo mán­uðum eða árum skiptir sé ofbeldi af verstu gerð.

Þetta kom fram í máli hans undir liðnum störf þings­ins á Alþingi síð­ast­lið­inn mið­viku­dag.

Þing­mað­ur­inn gerði að umtals­efni dóm Hér­aðs­dóms Reykja­víkur þar sem hann sýkn­aði Sjúkra­trygg­ingar og ríkið af kröfu konu sem krafð­ist þess að fá greitt 1.200 þús­und krónur með drátt­ar­vöxtum auk máls­kostn­aðar fyrir það að fara í aðgerð hjá Klíník­inni í Ármúla.

„Hún má fara í þrisvar sinnum dýr­ari aðgerð erlendis en komst ekki vegna COVID-19. Lögmaður hennar segir þetta brot á mann­rétt­inda­á­kvæði stjórn­ar­skrár­innar. Í Morg­un­blað­inu í morgun kemur einnig fram að Sjúkra­trygg­ingar sam­þykktu að konan mætti leita sér með­ferðar innan EES-svæð­is­ins en ekki hjá Klíník­inni í Ármúla vegna samn­ings­leysis um greiðslu­þátt­töku í með­ferð hjá þeim.

Þá er bent á að íbúar ann­arra landa Evrópska efna­hags­svæð­is­ins virð­ast njóta betri réttar hér á landi en íslenskir rík­is­borg­arar. Þeir geta komið hingað og farið í aðgerð á Klíník­inni og fengið hana greidda hjá sínum opin­beru sjúkra­trygg­ingum en ekki íslenskir rík­is­borg­arar. Þau hjá Klíník­inni eru nógu góð til að laga og hjálpa til á Land­spít­al­anum vegna COVID-19, og það með sam­þykki rík­is­stjórn­ar­innar, en þau eru ekki boð­leg til að binda enda á fjár­hags­legar, and­legar og lík­am­legar pynd­ingar hjá þjáðu og illa veiku fólki,“ sagði hann.

Grimmileg refsing fyrir að slasast eða veikjast

Guð­mundur Ingi sagði enn fremur að það eina sem í boði væri hjá rík­is­stjórn­inni væri að þetta fólk bryddi rót­sterk verkja­lyf, þ.e. ópíóíða sem gerði það jafn­vel að fíklum eða öryrkjum fyrir lífs­tíð.

„Að bryðja 15 til 20 töflur á dag á biðlista eftir aðgerðum svo mán­uðum eða árum skiptir og þar af tvær til þrjár töflur vegna auka­verk­ana af verkja­lyfjum er ofbeldi af verstu gerð,“ sagði hann og bætti því við að hann þekkti af eigin raun „verkjafang­els­is­of­beldið“ á biðlista, sem væri ótrú­lega grimmi­leg refs­ing fyrir það eitt að slasast eða bara veikj­ast, og hvað þá ef fólk væri með fjöl­skyldur og börn.

„Og fólk sem er í fullri vinnu er að detta út af vinnu­mark­aðnum. Mann­rétt­indi, jafn­rétti og jafn­ræði eru fótum troðin í þessu máli og rík­is­stjórn­inni ber að stöðva þetta ofbeldi strax,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár