Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider hefur tekið saman sinn lista yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag. Ýmislegt áhugavert er á listanum í dag, þótt alltaf megi deila um mikilvægi ýmissa mála.


  1. AK flokkurinn í Tyrklandi missti þing­meirihluta sinn í gær eftir þrettán ára valdatíð. Nú þarf flokkurinn að reyna að mynda meirihluta með stjórnar­andstöðu­flokki.

  2. Áætlanir Grikkja njóta ekki stuðnings frá lánardrottnum sínum. Grikkir vilja endur­skipuleggja skuldir ríkisins með því að endur­fjármagna lán og fá afskriftir af þeim.

  3. Breska fyrir­tækið CBI hefur breytt hagvaxtar­spám sínum fyrir Bretland og varað við alvarlegum afleiðingum af því ef Grikkland hættir að vera aðildar­ríki að ESB. CBI spáir 2,4 prósenta vexti á þessu ári og 2,5 prósentum á næsta ári.

  4. Sepp Blatter, forseti FIFA, ræddi um tíu milljóna dala greiðslu við Thabo Mbeki, sem þá var forseti Suður-Afríku, í tölvu­pósti. FIFA hefur því þurft að viðurkenna að Blatter vissi um þessa greiðslu.

  5. Starfs­maður í Barclays-banka, Justin Kwan, skrifaði tölvupóst til lærlinga í bankanum sem bar titilinn "velkomin í frum­skóginn" og innihélt leið­beiningar sem hann kallaði boðorð. Þar var ýmislegt niðrandi að finna, og eftir að Wall Street Journal birti tölvu­póstinn hefur verið greint frá því að hann hafi verið rekinn úr bankanum.

  6. David Cameron, forsætis­ráðherra Bretlands, hefur gefið í skyn að ráðherrar ríkis­stjórnarinnar hans verði látnir hætta ef þeir styðja ekki áfram­haldandi veru Bretlands í Evrópu­sambandinu. 60 þingmenn flokksins hafa tilkynnt að þeir muni berjast fyrir því að Bretland yfirgefi sambandið.

  7. Lögreglu­maður í Texas hefur verið settur í leyfi eftir að hann beindi byssu að óvopnuðum unglingum í sundlaugapartýi. Unglingarnir voru blökku­menn, og myndband af atvikinu var sett á netið.

  8. Tilkynnt hefur verið að Caitlyn Jenner hljóti ESPY verð­launin sem bandaríska íþrótta­stöðin ESPN veitir, en Caitlyn hét áður Bruce og vann til gull­verðlauna á Ólympíu­leikum. Mynd af manni sem missti tvo útlimi í Írak, og er sagður hafa tapað verð­laununum fyrir Caitlyn fer nú um internetið eins og eldur í sinu, en ESPN segir myndina ranga.

  9. Fjöl­miðlar fjalla nú með ólíkum hætti um súper­módelið Kate Moss og flugferð hennar frá Tyrklandi til London. Daily Mail segir að henni hafi verið fylgt úr fluginu og hún handtekin eftir að hafa verið með ólæti í vélinni, en Telegraph segir að ekkert slíkt hafi átt sér stað.

  10. Suður-Kóreskir vísinda­menn hafa hlotið tvær milljónir dala í verðlaun frá varnarmála­ráðuneyti Banda­ríkjanna eftir að vélmenni sem þeir smíðuðu hafði betur gegn 22 öðrum vélmennum. Vélmennin voru látin keppa í ýmsum þrautum, eins og að keyra bíl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár