Nú vilja auðkýfingar fá fossa í ofursnekkjurnar

Nýjasta æðið á meðal aukýfinga í ofur­snekkju­bransanum, er að panta sér eitt stykki foss í snekkjuna. Nei, þetta er ekki grín heldur staðreynd sem frétta­miðillinn Business Insider greinir frá.

Maður getur varla talist sem alvöru auðkýfingur nema maður eigi eitt stykki ofur­snekkju. Fljótandi höll er nefnilega eitt helsta stöðutákn hinna vellauðugu, þar sem þeir geta dvalið í íburði og vellystingum.

Snekkjurnar, að minnsta kosti þær allra nýjustu og flottustu, eru svo ríkulega vélbúnaði búnar að þær geta náð allt að 30 sjómílna siglinga­hraða, eða hátt í 55 kílómetra hraða á klukku­stund. Samkvæmt umfjöllun Business Insider kosta minnstu ofur­snekkjurnar, án mikils íburðar, um 74 milljónir bandaríkja­dala, eða hátt í tíu milljarða íslenskra króna.

Ofur­snekkjufoss. Mynd: Heesen Yachts

Ofursnekkjufoss. Mynd: Heesen Yachts
Ofur­snekkju­foss. Mynd: Heesen Yachts

Þegar þú átt auðæfi sem slá við lands­framleiðslu lítils ríkis, getur þú hlaðið ofur­snekkjuna þína með ýmsum tilgangs­lausum auka­hlutum, eins og fossi sem er nú heitasta viðbótin við vellystingarnar um borð í nýjum ofur­snekkjum heimsins. En auðkýfingarnir vilja ekki bara fá fossana út frá fagur­fræðilegu sjónar­miði, heldur þykja fossarnir einnig um margt praktískir.

Til að mynda ef skrúfað er hressilega frá vatningu getur fossinn virkað eins og skjöldur og gert ljós­myndurum erfiðara fyrir að ná myndum af frægum ofur­snekkju­farþegum, hvort sem þeir eru kvikmynda­stjörnur, konungbornir eða stjórn­málamenn. Þá er auk þessa hægt að nota aflmikla fossa sem skjái fyrir skjávarpa, hefur Business Insider eftir Söru Gioanola, framkvæmda­stjóra hjá hollenska snekkju­fram­leiðandanum Heesen.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár