Olían lækkar og lækkar - Ætti að draga úr verðbólgu hér á landi

Vikan frá 17. ágúst til dagsins í dag er mesta lækkunar­vika á mörkuðum frá því árið 1986, eða í næstum þrjátíu ár, sé horft til verðbréfa­markaða og hrávara í senn. Olían hélt áfram að lækka og var olíu­verðið í lok dags á föstudag komið niður fyrir 40 Bandaríkja­dali á tunnuna. Frá því í júní hefur það lækkað um 35 prósent. Samhliða lækkuðu hlutabréfa­vísitölur um allan heim, meðaltali um nálægt sjö prósent.

Barist um markaðshlutdeild


„Það er aug­ljóst að stórir olíu­fram­leið­endur eru að berj­ast um mark­aðs­hlut­deild, þar á meðal Rússar, Sádi-Arabar og Banda­ríkja­menn,“ segir John Kilduff, sér­fræð­ingur hjá Again Capital LLC vog­un­ar­sjóðnum í New York, í sam­tali við Bloomberg.

Því er spáð að olíuverð muni haldast lágt, eða í lægri kantinum, á þessu ári þar sem ójafnvægi eru töluvert milli framboðs og eftir­spurnar í heims­búskapnum. Þrátt fyrir að dregið hafi úr eftir­spurn hefur fram­leiðsla ekki dregist saman nema að litlu leyti, sem þrýstir verðinu frekar niður á við, að því er segir í frétt Bloomberg.


Commodities Coffee -9.1% Oil -6.6% Natural Gas -4.9% Bloomberg C Index -2.8% Copper -2.7% Silver +0.5% Iron Ore -1.1% Corn +0.5% Gold +4.3%


— Lawrence McDonald (@Convertbond) August 23, 2015


Getur dregið úr verðbólgu hér á landi


Olíuverð hefur mikil áhrif á gang mála á hrá­vöru­mörk­uðum, og verð­lagn­ingu á öðrum vörum þar sem olíu þarf til fram­leiðslu, svo dæmi sé tekið. Þannig tengj­ast verð­sveiflur á olíu verði á ýmsum vöru­teg­undum. Gera má ráð fyrir að þessar hröðu verð­lækk­anir á olíu, um 35 pró­sent á tveimur mán­uðum, eigi að ein­hverju leyti eftir að koma fram í verð­lagi á Íslandi, einkum á inn­fluttum vörum. Á innan við ári hefur tunnan af olíu fallið í verði úr 110 Banda­ríkja­dölum niður í 40 nú. Verð­þró­unin eins og hún er nú setur þrýst­ing verð­lag niður á við, en verð­bólga mælist 1,9 pró­sent þessa dag­ana, undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði Seðla­bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár