Framleiðir vegan páskaegg eitt síns liðs

Alda villiljós fram­leiðir vegan páskaegg eftir pöntunum og á erfitt með að anna eftir­spurn.

Alda Villiljós hefur nýlega hafið rekstur á sinni eigin veislu­þjónustu sem sérhæfir sig í vegan sætindum og kökum. Fyrir­tækið heitir Namm og dregur nafn sitt af viðbrögðum fólks þegar það smakkar sætindin. Mikið álag er á Namm um páskana en Alda fram­leiðir vegan páskaegg eftir pöntunum og á erfitt með að anna spurn.

Þegar blaða­maður hafði samband var hán á fullu við páskaeggja­gerð en hán er eitt í allri fram­leiðslu og hefur ekki undan eftir­spurn. „Þetta er mjög mikið fyrstur kemur fyrstur fær, því miður,“ segir hán. Alda segir það mjög leiðinlegt því hán viti hversu erfitt sé að verða sér úti um vegan páskaegg. Yfir fimmtíu egg eru í pöntun að svo stöddu. Hán segir fram­leiðsluna vera svolítið að gerast á síustu stundu en það sé allt í lagi því „þetta reddast!“

„Þetta reddast!“
Vegan páska­egg úr smiðju Namm
…
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár