Nýtt tilboð frá Grikklandi á morgun - Bankarnir áfram lokaðir

Fjármála­ráðherrar evruríkja búast við að fá í hendurnar nýtt samnings­tilboð á morgun, þriðjudag, frá Alexis Tsipras, forsætis­ráðherra Grikk­lands, og stjórn hans. Talsmaður Angelu Merkel, kanslara Þýska­lands, sagði í dag að stjórn­völd í Þýska­landi líti svo á að Grikkland eigi næsta leik. Þar sem gríska þjóðin hafi hafnað síðasta samnings­tilboði í þjóðar­atkvæða­greiðslu þá þurfi Grikkir að leggja fram nýtt tilboð. Merkel fundar með Francois Hollande, forseta Frakk­lands, í París í kvöld. Á sama tíma verður Euclid Tsaklotos, sem leitt hefur viðræður Grikkja gagnvart kröfu­höfum, formlega skipaður í embætti fjármála­ráðherra landsins. Hann tekur við af Yanis Varoufakis sem hætti í dag.

Í kjölfar niður­stöðu þjóðar­atkvæða­greiðslunnar í Grikk­landi í gær, þar sem Grikkir höfnuðu samkomu­lagi við kröfuhafa sem fól í sér mikinn niður­skurð og aðhald í ríkis­rekstri gegn frekari fyrir­greiðslum og neyðar­aðstoð, hafa þrír stjórnar­andstöðu­flokkar lýst yfir stuðningi við Syriza, stjórnar­flokk Tsipras forsætis­ráðherra, í viðræðunum við kröfuhafa. Grikkir krefjast frekari skulda­niður­fellinga en þeim hefur verið boðið hingað til og benda máli sínu til stuðnings meðal annars á nýlega greiningu Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins (AGS), þar sem talað er fyrir nauðsyn þess að grynnka á skuldum gríska ríkisins. AGS sendi frá sér yfir­lýsingu og dag og sagðist sjóðurinn fylgjast grannt með stöðu mála og vera tilbúin að aðstoða Grikki, kalli þeir eftir því.

Stærri gjalddaga 20. júlí - Bankar áfram lokaðir

Þýskaland er stærsti lána­drottinn gríska ríkisins og ræður afstaða þeirra miklu um næstu skref. Efnahags­ráðgjafi Þýska­lands og næst­ráðandi í ríkis­stjórn Merel, Sigmar Gabriel, sagði í dag að Grikkir standi frammi fyrir greiðslu­þroti og ef þeir vilji halda áfram evrustam­starfi þurfi þeir að gangast við kröfum kröfuhafa. Næsti stóri gjalddagi á neyðar­lánum til Grikk­lands er 20. júlí næst­komandi, þegar 3,5 milljarða evra lán frá Seðla­banka Evrópu fellur á gjalddaga. Ef Grikkir greiða ekki af láninu hefur það mun viðameiri afleiðingar heldur en þegar gríska ríkið greiddi ekki af 1,6 milljarða evra láni frá AGS um síðustu mánaðarmót. Afleiðingarnar yrðu meðal annars þær að önnur lán falla á gjalddaga vegna brostinna skilmála.


Staða gríska ríkisins er grafal­varleg. Líflínur grískra banka til Seðla­banka Evrópu hafa verið frosnar frá því boðað var til þjóðar­atkvæða­greiðslu. Stjórn­völd í Grikk­landi stefnu að því að opna banka­stofnanir í landinu aftur á morgun en af því verður ekki. Bankarnir verða lokaðir á morgun og miðvikudag, hið minnsta. Hámarks­útgreiðsla úr hrað­bönkum verður áfram 60 evrur á dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár