Næstu 48 klukkustundir veigamiklar í Grikklandi - Hvað gerist næst?

Mikil óvissa ríkir um næstu skref í Grikk­landi eftir að gríska þjóðin hafnaði samkomu­lagi við kröfuhafa í þjóðar­atkvæða­greiðslu á sunnudag með ríflega 60 prósent atkvæða. Seðla­banki Evrópu lokaði fyrir lánalínu til grískra banka í kjölfar þess að Alexis Tsipras, forsætis­ráðherra Grikk­lands, boðaði til atkvæða­greiðslunnar. Fulltrúaráð seðla­bankans mun í dag ákveða hvort opnað verði fyrir fjár­mögnun á ný. Líklegast þykir að beðið verði eftir viðbrögðum og ákvörðunum leiðtoga evru­ríkjanna, sem funda um stöðuna bæði í kvöld og á morgun. Ólíklegt þykir að Seðla­banki Evrópu dragi alfarið úr fjárhags­aðstoð til Grikk­lands en það er mat sérfræðinga að slíkt yrðu endalok Grikkja í evru­samstarfinu.

Niður­staða þjóðar­atkvæða­greiðslunnar er sigur fyrir Tsipras forsætis­ráðherra og ríkis­stjórn hans. Lítill tími er þó til að fagna því alvarleg skulda­staða Grikk­lands stendur eftir sem áður óleyst. Um 1,6 milljarða evra greiðsla af láni frá Alþjóða­gjaldeyris­sjóðinum (AGS) féll á gjalddaga í byrjun mánaðarins og rúmlega tvöfalt hærra lán frá Seðla­banka Evrópu fellur á gjalddaga þann 20. júlí. Grikkir krefjast þess að samkomulag við kröfuhafa feli í sér minna aðhald í ríkis­rekstri en kröfur hafa verið gerðar um til þessa. Það er mat fjölmiðla, meðal annars The Guardian, að næstu 48 klukku­stundir muni reyna á þá full­yrðingu Tsipras að afstaða grísku þjóðarinnar í þjóðar­atkvæða­greiðslunni styrki samnings­stöðu landsins.


Robert Peston, ritstjóri efnahags­mála hjá Breska ríkis­útvarpinu BBC, hefur skrifað um stöðuna í dag og segir að hver sem niður­staðan verði um áframhald Grikk­lands í evru­samstarfinu, þá verði hún dýrkeypt. Peston segir framtíð Grikk­lands í sömu höndum og áður, það er í höndum Angelu Merkel, kanslara Þýska­lands. Þá segir Peston frá skoðun Georgios Stathakis, efnahags­ráðherra Grikk­lands, að afar mikilvægt sé að Seðla­banki Evrópu styðji við gríska banka í að minnsta kosti viku til tíu daga til viðbótar, svo finna megi farsæla lausn á málinu með samningum.


Leiðtogar stærstu evru­ríkjanna hafa hver á fætur öðrum komið skila­boðum áleiðis til fjölmiðla í dag. Í sinni einföldustu mynd eru skila­boðin þau að enn sé tími til þess að semja um skulda­stöðu Grikk­lands og áfram­haldandi veru ríkisins í evru­samstarfinu. Margir urðu vonbetri í morgun þegar tilkynnt var um afsögn hins yfirlýsinga­glaða Yanis Varoufakis, fjármála­ráðherra Grikk­lands, sem í aðdrag­anda þjóðar­atkvæða­greiðslunnar líkti evru­leiðtogum við hryðju­verkamenn. Leiðtogar evru­ríkjanna líta svo á að boltinn sé nú hjá Grikkjum sem þurfi að leggja fram ný samnings­drög. Sérfræðinga­hópur The Economist telur 60 prósent líkur á að Grikkir hætti evru­samstarfinu.


Bankar í Grikk­landi hafa verið lokaðir síðustu sex viðskipta­daga en til stendur að opna þá á morgun. Óvíst er hvort það gangi eftir en margir telja það ómögulegt án aðkomu Seðla­banka Evrópu og loforðs um líflínu til bankanna. Almenningur í Grikk­landi hefur aðeins mátt taka út 60 evrur á dag frá því þarsíðustu helgi og hefur gætt skorts á tuttugu evru seðlum í landinu á síðustu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár