Vanoufakis segir af sér sem ráðherra - nærveru hans var ekki óskað við samningaborðið

Yanis Varoufakis, fjármála­ráðherra Grikk­lands, sagði í morgun af sér embætti. Hann tilkynnti þetta á bloggsíðu sinni og setti síðan skila­boðin á Twitter. Tíðindin eru óvænt í ljósi þess að gríska þjóðin hafnaði samningum við kröfuhafa landsins, hið svokallaða þríeyki (e. troika) í þjóðar­atkvæða­greiðslu í gær. Um 61 prósent Grikkja sagði nei eða 39 prósent já samkvæmt bráðabirgða­tölum.


Minister No More! http://t.co/Oa6MlhTPjG


— Yanis Varoufakis (@yanisvaroufakis) July 6, 2015

Varoufakis, sem var mjög stóryrtur í aðdrag­anda atkvæða­greiðslunnar og sagði kröfuhafa Grikk­lands meðal annars fremja hryðju­verk á þjóð sinni, sagði í færslunni að skömmu eftir að niður­staða atkvæða­greiðslunnar hafi legið fyrir hafi hann fengið þær upplýsingar að nærveru hans við samninga­borðið væri ekki óskað af hálfu ýmissa sem við það sitja. Alexis Tsipras forsætis­ráðherra tók undir þessa hugmynd og því hafi Varoufakis ákveðið að segja starfi sínu lausu.

Frétta­skýrendur virðast sammála um að Tsipras hafi þar með verið að fara af vilja kröfuhafa Grikkja: Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins, Seðla­banka Evrópu og framkvæmdar­stjórnar Evrópu­sambandsins sem vildu ekki að Varoufakis kæmi meira að viðræðum um nýtt samkomulag.

Gengi evru hækk­aði eftir afsögn Varoufakis í morgun en þeir hluta­bréfa­mark­aðir Evrópu sem eru þegar opnir hafa lækkað.

Varoufa­k­i

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár