Nota gervigreind fyrir sjálfvirkt myndavélaeftirlit

Eftirlit sem styðst við gervi­greind er veruleiki á Íslandi í dag en slík tækni getur flokkað fólk eftir útlits­einkennum. Persónu­verndar­stofnanir í Evrópu hafa kallað eftir því að slíkt verði bannað. Á Íslandi virðist gervi­greindar­eftirlit aðallega notað fyrir aðgangs­stýringu og hraða­eftirlit en mögu­leikarnir eru miklir.

Sjálfvirkt
Sjálf­virkt Þegar gervi­greind er notuð í eft­ir­lit­stil­gangi er hægt að fylgj­ast með til­teknum ein­stak­lingum eða þeim sem hafa til­tekið útlit í raun­tíma. Mynd: Shutterstock

Eftirlits­myndavélar sem tengdar eru við gervi­greindar­hugbúnað eru í notkun á Íslandi. Slíkar mynda­vélar geta haft sjálf­virkt eftirlit með tilteknum svæðum og geta borið myndaefni saman við önnur gögn, svo sem lista yfir einstaklinga eða ökutæki. Þannig er hægt að hafa nákvæmt og sjálf­virkt eftirlit með ferðum fólks og ökutækja á tilteknum svæðum. Notkun á Íslandi virðist fyrst og fremst snúast um almenna vöktun og skráningu bílnúmera við bílastæði.

Mynda­vélar sem seldar eru á Íslandi koma frá kínverska fyrir­tækinu Dahua, sem hefur sætt gagnrýni fyrir að sjá kínverskum stjórn­völdum fyrir eftirlits­búnaði sem fylgist sérstak­lega með Úígúrum. 

Geta greint lit og klæðnað

Auður Lilja Davíðs­dóttir, framkvæmda­stjóri hjá Öryggis­miðstöðinni, sem er eitt þeirra fyrir­tækja sem selur gervi­greindar­eftirlits­myndavélar, segir að meðalhraða­myndavélar Vega­gerðarinnar sé dæmi um gervi­greindar­eftirlit. „Mynda­vélarnar reikna meðal­hraða ökumanns á tilteknum kafla með því að mynda bifreiðina og mynda hann aftur að ákveðnum vegar­kafla loknum og reiknar þannig …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár