Ritstjóri Kjarnans hlaut blaðamannaverðlaun ársins fyrir Kaupthinking

Þórður Snær Júlíusson hlaut í daga blaðamanna­verðlaunin ársins 2018 fyrir bók sína um Kaupþing - Kaupthinking, bankinn sem átti sig sjálfur.

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, hlaut í dag blaðamanna­verðlaun ársins 2018 fyrir bók sína Kaupthinking - bankinn sem átti sig sjálfur - sem fjallar um Kaupþing banka.

Bókin byggir á tíu ára vinnu höf­undar og á miklu magni trún­að­ar- og rann­sókn­ar­gagna, íslenskum og erlend­um, sem hann fékk aðgang að snemma á síð­asta ári. Á meðal þeirra gagna eru, ógrynni tölvu­pósta, frum­gögn innan úr Kaup­þingi, yfir­heyrslur yfir sak­born­ingum og vitn­um, grein­ar­gerðir rann­sak­enda í risa­vöxnum málum og hlust­anir í síma sem flestar áttu sér ann­að­hvort stað um það leyti sem skýrsla rann­sókn­ar­nefndar Alþingis birti skýrslu sína í apríl 2010 eða um mán­uði síðar í kjöl­far þess að helstu stjórn­endur Kaup­þings voru hnepptir í gæslu­varð­hald vegna gruns um stór­fellda brota­hegð­un. Flestir þeirra hlutu síðar fang­els­is­dóma fyrir efna­hags­brot sem eiga sér enga hlið­stæðu í Íslands­sög­unni.

Rökstuðningur dómnefndar verð­launanna var svohljóðandi:

„Þórður Snær Júlíusson, Kjarnanum, hlýtur Blaðamanna­verðlaun ársins 2018 fyrir heild­stæða greiningu á hugarfari og ólöglegum fjármála­gjörningum í bókinni Kaupthinking – Bankinn sem átti sig sjálfur.

Umfjöllun Þórðar Snæs dregur upp skýra mynd af ósæmilegu háttar­lagi þeirra lykil­bankamanna sem leiddu Kaupþing frá einka­væðingu að falli árið 2008. Umfjöllunin er afrakstur áralangrar rann­sóknar Þórðar á málinu og víðtækrar heimilda­vinnu úr bæði opinberum og óopinberum gögnum sem hann komst yfir. Vinna hans á sér fáar hlið­stæður.

Bókin sýnir hvernig gera má yfirgrips­mikla rannsóknar­vinnu til margra ára bæði auðlæsilega og skiljanlega. Hún er áþreifanleg heimild um það traust sem blaða­maður getur áunnið sér og þá þekkingu sem myndast þegar hann helgar sig málefni.“

Ragn­heiður Linnet, Mannlífi, hlaut verðlaun fyrir viðtal ársins við Mer­hawit Bar­ya­mik­ael Tes­fasla­se, ekkju plast­barka­þeg­ans, Andemariam Beyene, um aðdrag­anda ígræðsl­unnar og hvernig líf fjöl­skyld­unnar umturn­að­ist eftir þá örlaga­ríku aðgerð.

Rökstuðningur dómnefndar var svohljóðandi:

„Ragn­heiður Linnet, Mannlífi, hlýtur verð­launin fyrir viðtal sitt við Merhawit Baryamikael Tesfaslase Hún er ekkja plast­barkaþegans Andemariams Beyene sem var fyrsti maðurinn sem gervi­barki var græddur í árið 2011.

Í viðtalinu kynnist lesandinn harmleik fjöl­skyldunnar. Merhawit lýsir aðdrag­anda aðgerðarinnar og því þegar hún missti mann sinn í einu stærsta svikamáli sem upp hefur komið í lækna­vísindum áratugum saman. Málið tengist Íslandi með beinum hætti vegna þess að Andemariam var búsettur hér þegar hann veiktist og því sjúklingur íslenskra lækna.

Merhawit greinir frá því hvernig hún stóð upp réttinda­laus með þrjú ung börn eftir andlát Andemariams árið 2014.

Viðtalið er vel skrifað og hjartnæmt. Auk þess að greina frá örlögum Merhawit og barnanna veitir það góða innsýn í málið og það sem aflaga fór bæði vísinda­lega og siðfræði­lega.“

Freyr Rögn­valds­son og Stein­dór Grétar Jóns­son, Stund­inni, fyrir umfjöllun ársins, um landið sem auð­menn eiga sem veitir ríka yfir­sýn yfir umfang fyrrum bújarða sem nú eru í eigu inn­lendra og erlendra auð­manna og inn­sýn í hverjir þeir eru.

Rökstuðningur dómnefndar var svohljóðandi:

„Verðlaun fyrir rannsóknar­blaða­mennsku ársins 2018 hljóta Freyr Rögnvaldsson og Steindór Grétar Jónsson, Stundinni, fyrir umfjöllun sína, Landið sem auðmenn eiga.Í umfjölluninni birtist eignar­hald auðfólks á jörðum á Íslands­korti sem nær yfir heila opnu og veitir skýra yfirsýn yfir umfang fyrrum bújarða sem nú eru í eigu innlendra og erlendra auðmanna. Sumir þeirra hafa safnað að sér fjölda jarða og jafnvel keypt upp jarðir á ákveðnum stöðum á landinu. Þá er eignar­hald fjölda jarða í félögum sem stundum hvílir leynd yfir.

Í umfjölluninni eru viðtöl við nokkra þeirra sem hvað umsvifa­mestir hafa verið í jarða­kaupum og veita viðtölin innsýn í marg­breytilegar ástæður fólks fyrir því að vilja eignast jarðir á Íslandi.

Framlag þeirra Freys og Steindórs veitir mikilvæga yfirsýn yfir umdeilt mál sem hefur verið mikið til umræðu í samfélaginu.“

Aðal­heiður Ámunda­dótt­ir, Frétta­blað­inu, hlaut verðlaun fyrir umfjöllun með fréttum og frétta­skýr­ingum um for­sögu, end­ur­upp­töku og eft­ir­mála Guð­mund­ar- og Geir­finns­mála.

Rökstuðningur dómnefndar var svohljóðandi:

Verðlaun fyrir umfjöllun ársins hlýtur Aðal­heiður Ámunda­dóttir, Frétta­blaðinu, fyrir upplýsandi og greinargóð skrif um Guðmundar- og Geirfinnsmál.

Í umfjöllun sinni um endur­upptöku og um leið forsögu Guðmundar- og Geirfinns­mála tekst Aðalheiði að fanga kjarna atburða hverju sinni og setja í samhengi.

Auk upplýsandi frétta af gangi dóms­málsins varpaði Aðal­heiður í frétta­skýringum ljósi á sögu manns­hvarfanna tveggja 1974, rannsókn þeirra á sínum tíma og aðdrag­anda þess að málin fengust endur­upptekin á síðasta ári. Þá fylgdi hún málinu vel eftir þegar Hæstiréttur hafði fellt sinn dóm með umfjöllun um möguleg eftirmál og mögu­leikanum á því að manns­hvörfin upplýsist á endanum.

Skrif Aðal­heiðar einkennast af djúpri þekkingu á flókinni og langri sögu sem hún skilar lesendum á skýran og aðgengi­legan máta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár