Loðnukvótinn aukinn – Fá að veiða 61 þúsund tonn

Tekist hefur að afstýra loðnu­bresti þriðja árið í röð. Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra segir að mikið sé í húfi fyrir við­spyrnu efna­hags­lífs­ins að loðnu­ver­tíðin verði eins öflug og kostur sé.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hefur ákveðið að heim­ila veiðar á allt að 61 þús­und tonni af loðnu á fisk­veiði­ár­inu 2020/2021. Það er aukn­ing um 39.200 tonn frá fyrri ráð­gjöf Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar en nýja reglu­gerðin um útgef­inn kvóta, sem Kristján Þór hefur und­ir­ritað, er einnig í sam­ræmi við ráð­gjöf stofn­un­ar­innar: Hún var end­ur­skoðuð eftir mæl­ingar á loðnu­stofn­inum í síð­ustu viku.

Á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun gerði Kristján Þór einnig grein fyrir því að rann­sókna­skip Haf­rann­sókna­stofn­unar, Árni Frið­riks­son, hafi farið af stað til frek­ari mæl­inga síð­ast­lið­inn sunnu­dag. Í dag fara svo þrjú skip frá útgerðum loðnu­skipa til loðnu­leitar og því munu sam­tals fjögur skip sinna mæl­ing­unum næstu daga. Auk þess eru tvö loðnu­skip til við­bótar til­búin að koma að verk­efn­inu ef þörf verður á.

Kristján Þór segir í til­kynn­ingu frá ráðu­neyti hans að það sé ánægju­legt að tek­ist hafi að afstýra loðnu­bresti þriðja árið í röð. „Þetta er vissu­lega ekki mikið magn en sú stað­reynd að íslensk skip munu nú halda til veiða á loðnu er skref í rétta átt. Leitin heldur áfram af fullum þunga og í dag bæt­ast þrjú skip við í þá leit. Það er enda mikið í húfi fyrir við­spyrnu efna­hags­lífs­ins að loðnu­ver­tíðin verði eins öflug og kostur er.“

Enginn loðnu­kvóti hefur verið gef­inn út í tvö ár. Til að átta sig á virði loðnu­veiða er vert að benda á að loðna var flutt út á erlenda mark­aði fyrir 18 millj­arða króna árið 2017, 18,3 millj­arða króna árið 2016 og heila 29 millj­arða króna árið 2015.

Í skýrslu sem var unnin um stöðu, áhrif og afleið­ingar loðnu­brests 2019 fyrir Vest­manna­eyj­ar, og birt var snemma árs í fyrra, kom fram að loðnu­brestur hefði þar bein áhrif á 350 starfs­menn og ígildi 60 árs­verka. Tap­aðar launa­tekjur í Vest­manna­eyjum væru að minnsta kosti 1.000 millj­ónir króna. Tekju­tap útgerð­ar­fyr­ir­tækja væri um 7.600 millj­ónir króna og ann­arra fyr­ir­tækja um 900 millj­ón­ir. Vest­manna­eyja­bær og Vest­manna­eyja­höfn yrðu af um 160 millj­ónum sökum þessa, sam­kvæmt skýrslu­nni, sem var unnin fyrir bæj­ar­stjórn Vest­manna­eyja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár