Hafnarfjörður greiddi sáttagreiðslu í máli Óskars Steins

Hafnar­fjarðarbær aftur­kallaði ráðningu Óskars Steins Ómars­sonar vegna pólitískra skrifa hans. Umboðs­maður Alþingis sagði meðferð málsins hafa farið á svig við stjórn­sýslulög og hefur Hafnar­fjarðarbær greitt sátta­greiðslu í málinu.

Óskar Steinn Ómarsson
Óskar Steinn Ómarsson Hafn­ar­fjarð­ar­bær féll frá ráðn­ingu Óskars Steins eftir að hann gagn­rýndi meiri­hlut­ann í Hafn­ar­firði. Mynd: Heiða Helgadóttir

Hafnar­fjarðarbær hefur þrisvar sinnum á kjör­tímabilinu greitt bætur vegna starfs­mannamála. Þá hafa verið gerðir 16 starfsloka­samningar sem ná umfram þriggja mánaða uppsagnar­frests.

Þetta kemur fram í minnis­blaði mannauðs­stjóra Hafnar­fjarðar­bæjar til bæjarráðs sem lagt var fram á fundi þess í gær. Tilefnið var fyrir­spurn bæjar­fulltrúa Samfylkingarinnar þar sem óskað var sundur­liðunar á sérsamningum um greiðslu bóta vegna starfs­mannamála, starfsloka­samningum og sérstökum samningum umfram umsamin starfs­kjör við starfslok.

Í minnis­blaðinu kemur fram að sáttar­greiðsla hafi verið greidd í janúar í kjölfar álits Umboðs­manns Alþingis. Upphæð sáttar­greiðslunnar er trúnaðarmál samkvæmt samningnum.

Þar getur aðeins verið um að ræða eitt álit Umboðs­manns Alþingis sem tengist Hafnar­fjarðarbæ á undan­förnum árum. Umboðs­maður komst að því í desember að máls­meðferð Hafnar­fjarðar­bæjar hafi ekki verið í samræmi við stjórnsýslulög þegar skóla­stjóri Hraun­vallastjóra féll frá ráðningu umsækjandans Óskars Steins Ómars­sonar í starf deildar­stjóra tómstunda­miðstöðvar skólans þremur vikum eftir að hafa ráðið hann til starfsins.

…
Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár