Kínversk stjórnvöld fyrirskipa brottflutning af sprengjusvæði

Kínversk stjórn­völd hafa fyrir­skipað brottfluting alls fólks af svæðinu í kringum sprengju­svæðið í borginni Tianjin, þar sem gríðar­lega öflug sprenging varð á miðvikudag á iðnaðar­svæði. Húsnæði sem notað var til þess að geyma púður, olíu og ýmis efni sem notuð eru í iðnaði sprakk þá í loft upp.

Rannsókn stendur enn yfir á orsökum þess að sprengingin varð en nú er talið að 85 hafi látist og yfir 700 slasast.

Stjórn­völd hafa fyrir­skipað brott­flutninginn á svæði sem nær til þriggja kílómetra radíus frá svæðinu þar sem sprengingin varð, að því er segir á vef breska ríkis­útvarpsins BBC. Ástæðan er meðal annars sú að eitraðar gufur berast frá svæðinu og þykir óhagstæð vindátt auka líkurnar á því að gufurnar berist til fólks í borginni.


#Tianjin before and after http://t.co/1EKDvaB251 pic.twitter.com/Ydpuzi8KMl


— BBC News (World) (@BBCWorld) August 14, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár