Um 60 prósent Garðbæinga geta ekki nefnt að minnsta kosti þrjá bæjarfulltrúa á nafn

Um 20 prósent íbúa Garða­bæjar telja að ákvarðanir við stjórn sveitar­félagsins séu teknar ólýð­ræð­is­lega. Sjálfstæðis­flokkurinn mælist með 60 prósent fylgi í sveitar­félaginu en ánægja með meirihluta hans og bæjar­stjóra er minni.

Einn af hverjum fimm íbúum Garða­bæjar telja að ákvarðanir við stjórn sveitar­félagsins séu teknar með ólýðræðislegum hætti. Tæpur helmingur telur að ákvarðana­takan sé lýðræðisleg og rúmlega 31 prósent hafa ekki sterka skoðun á því.

Einungis 38,6 prósent íbúa geta nefnt nöfn að minnsta kosti þriggja bæjar­fulltrúa í Garðabæ en 61,4 prósent geta það ekki.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í könnun sem Maskína hefur gert fyrir Garða­bæjar­listann um bæjarmál í sveitar­félaginu. Garða­bæjar­listinn er samvinnu­verkefni Viðreisnar, Samfylkingar, Vinstri grænna og Bjartrar framtíðar í Garðabæ sem boðinn var fram í fyrsta sinn í sveitar­stjórnar­kosningunum 2018.

Sjálfstæðisflokkurinn áfram mjög sterkur

Listinn fékk 28,1 prósent atkvæða í þeim kosningum og þrjá fulltrúa kjörna. Listinn, ásamt flokkunum sem að honum standa, mælist með 30,5 prósent fylgi nú samkvæmt könnun Maskínu. Mögulegt er að það fylgi sé aðeins hærra þar sem aðspurðir sem segjast kjósa „annað“ eru 2,4 prósent. Inni í því mengi gætu verið stuðnings­menn bæði Vinstri grænna og Bjartrar framtíðar.

Sjálfstæðis­flokkurinn gín áfram sem áður yfir aðra flokka í Garðabæ. Fylgi hans mælist 60,2 prósent, sem er 1,8 prósentu­stigi minna en flokkurinn fékk í síðustu kosningum þar sem hann fékk átta af ellefu bæjar­stjórnar­mönnum Garða­bæjar kjörna.

Miðflokkurinn hefur dalað í vinsældum í Garðabæ. Hann fékk 6,8 prósent atkvæða í kosningunum 2018 en mælist nú með 3,2 prósent. Það er aðeins minna en Framsóknar­flokkurinn, sem mælist með 3,6 prósent fylgi. Hvorugur þeirra myndi ná inn fulltrúa í sveitar­stjórn ef kosið væri í dag.

Rúmur helmingur ánægður með meirihlutann og bæjarstjórann

Í könnun Maskínu kemur fram að 54,3 prósent íbúa Garða­bæjar eru ánægðir með störf meirihluta Sjálfstæðis­manna í sveitar­félaginu, 30,6 eru í meðallagi ánægðir og 15,1 prósent eru óánægðir.

Meirihluti Garðbæinga er ánægður með störf Gunnars Einars­sonar bæjar­stjóra Sjálfstæðis­flokks, eða 50,1 prósent. Um 20 prósent eru óánægð með hann og 30 prósent hafa ekki skýra skoðun á frammistöðu hans.

Þetta þýðir líka að hluti þeirra sem segjast kjósa Sjálfstæðis­flokkinn í Garðabæ er ekki ánægður með meirihlutann eða bæjar­stjórann.

Flestir vilja taka lán fyrir hallarekstri

Maskína spurði einnig þátt­takendur til hvaða aðgerða þeir myndu vilja grípa ef breyting yrði í tekjum og gjöldum Garða­bæjar vegna COVID-19, þar sem tekjur myndu lækka og útgjöld aukast. Rúmlega helmingur, alls 50,8 prósent, aðspurðra sagði að fyrsta val þeirra væri að stofna til lántöku og 19,6 prósent sögðu að fyrsta val þeirra væri að hækka útsvar. Þá sögðu 17,7 prósent að þeir myndu vilja skerða þjónustu bæjarins, 7,3 prósent að hækka ætti gjaldskrár og 4,6 prósent að hækka ætti fasteigna­skatta.

Samkvæmt fram­lagðri fjárhags­áætlun Garða­bæjar vegna ársins 2021 er gert ráð fyrir því það rekstrar­afgangur A-hluta bæjar­sjóðs verði neikvæður um 499 milljónir króna á þessu ári og samstæðu­reiknings um 71 milljón króna.

Tveir af hverjum þremur sem svaraði spurningum Maskínu bjuggu í sérbýli (einbýlis­húsi, raðhúsi eða parhúsi) en um þriðjungur í fjölbýlis­húsi.

Könnunin fór fram daga 20. nóvember til 15. desember 2020 og voru svarendur 424 talsins. Úrtak íbúa fékk tölvupóst með hlekk á könnunina og var send áminning þrisvar sinnum á þá sem ekki höfðu svarað. Hluti úrtaksins fékk hlekk á könnunina senda í gegnum sms.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár