Meirihluti ráðuneytisstjóra var skipaður án auglýsingar

Frá árinu 1954 hefur það verið meg­in­regla í lögum á Íslandi að það skuli aug­lýsa opin­ber­lega laus emb­ætti hjá íslenska rík­inu. Eftir þess­ari meg­in­reglu er þó ekki farið í mörgum til­vikum.

Af þeim tólf ein­stak­lingum sem sitja í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra á Íslandi í dag voru sjö skip­aðir í það, en fimm ráðnir í kjöl­far þess að starfið var aug­lýst laust til umsóknar. Þetta er staðan þrátt fyrir að lög og meg­in­reglur séu afar skýr hvað þetta varðar: það á að aug­lýsa þessi störf laus til umsókna. Sér­stakar, en þröngar, und­an­þágur eru frá þessu. Ráð­herrar fara hins vegar ítrekað á svig við þær skýru reglur og vilja lög­gjafans þegar þeir skipa í valda­mikil emb­ætti innan stjórn­sýsl­unnar og beita, að mati umboðs­manns Alþingis, sífellt breyti­legri flóru frá­vika til að rök­styðja það.

Valda­mesta emb­ættið innan stjórn­sýsl­unnar, utan þess að sitja sem ráð­herra í lýð­ræð­is­lega kjör­inni rík­is­stjórn, er emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra. Sitjandi rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur skipað níu enn starf­andi ráðu­neyt­is­stjóra frá því að hún tók við völdum seint á árinu 2017. Af þeim hafa sex verið fluttir til í starfi eða skip­aðir án aug­lýs­ingar, en þrí­vegis voru störfin aug­lýst laus til umsóknar og hæf­is­nefnd látin meta hverjir umsækj­enda væru hæf­astir til að sinna starfi ráðu­neyt­is­stjóra.

Af þeim þremur ráðu­neyt­is­stjórum sem rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna hefur ekki skipað hafa tveir verið í slíku emb­ætti frá árinu 2003.

Meginregla í næstum 70 ár

Allt frá árinu 1954, þegar lög um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins voru sett, hefur það verið meg­in­regla í lögum á Íslandi að aug­lýsa skuli opin­ber­lega laus emb­ætti og störf hjá rík­inu.

Þegar lögin voru end­ur­skoðuð og ný lög sett árið 1996 voru áfram ákvæði um aug­lýs­inga­skyld­una. Í þessum reglum er það meg­in­reglan að aug­lýsa skuli laus störf en þau til­vik þegar ekki er skylt að aug­lýsa störf eru afmörkuð sér­stak­lega. Þessar und­an­þágur frá aug­lýs­inga­skyldu eiga við um störf sem aðeins eiga að standa í tvo mán­uði eða skemur, störf sem eru tíma­bundin vegna sér­stakra aðstæðna, svo sem vegna orlofs, veik­inda, fæð­ingar- og for­eldra­or­lofs, náms­leyfis, leyfis til starfa á vegum alþjóða­stofn­ana og því um líkt, enda sé ráðn­ing­unni ekki ætlað að standa lengur en 12 mán­uði sam­fellt.

Þá eru und­an­þágur frá regl­unum sem fela í sér að störf sem hafa verið aug­lýst innan síð­ustu sex mán­aða ef þess er getið í aug­lýs­ing­unni að umsóknin geti gilt í sex mán­uði frá birt­ingu hennar. Að end­ingu er að finna und­an­þágur um störf vegna tíma­bund­inna vinnu­mark­aðsúr­ræða á vegum stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins og hluta­störf fyrir ein­stak­linga með skerta starfs­getu.

Engar fleiri und­an­þágur er að finna í lög­unum.

Stjórnendur velja að fara aðrar leiðir en að auglýsa

Þrátt fyrir þetta hafa komið upp fjöl­mörg dæmi um að aug­lýs­inga­skyld­unni hafi ekki verið fylgt. Á síð­ustu árum hefur, sam­kvæmt sam­an­tekt umboðs­manns Alþingis um þessi mál, auk þess bæst veru­lega við flóru frá­vika frá regl­unum. Oftast er þetta gert á grund­velli 36. greinar laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins þar sem sagt er að stjórn­vald geti skipað mann í emb­ætti eða sam­þykkt að hann flytj­ist í annað emb­ætti er lýtur öðru stjórn­valdi óski stjórn­valdið eftir því. Einnig hefur verið vísað í 7. grein sömu laga til að kom­ast hjá aug­lýs­inga­skyldu, enn þar segir að heim­ilt sé að flytja mann til í emb­ætti án þess að emb­ættið sé laust til umsóknar.

Skúli Magnússon var kjörinn nýr umboðsmaður Alþingis 26. apríl í fyrra og tók við embættinu 1. maí sama ár. Mynd: Stjórnarráðið
Skúli Magn­ús­son var kjör­inn nýr umboðs­maður Alþingis 26. apríl í fyrra og tók við emb­ætt­inu 1. maí sama ár. Mynd: Stjórn­ar­ráðið

Í umfjöllun sem umboðs­maður birti á heima­síðu sinni 28. apríl í fyrra sagði: „Þær athug­anir sem umboðs­maður hefur gert á fram­kvæmd stofn­ana rík­is­ins, einkum Stjórn­ar­ráðs­ins, á því hvernig lögum og reglum um aug­lýs­ingar á lausum stöfum er fylgt veita vís­bend­ingar um að nokkuð algengt sé að stjórn­endur velji að fara aðrar leiðir við að ráða í störf heldur en að aug­lýsa þau. Þá sýna þau mál sem komið hafa til athug­unar hjá umboðs­manni að und­an­förnu að stjórn­völd hafa í vax­andi mæli notað þær heim­ildir sem hafa komið til á síð­ari árum til að flytja emb­ætt­is­menn og starfs­menn milli stofn­ana og starfa án þess að aug­lýsa störfin.“

Í frétt­inni segir að það hafi vakið athygli umboðs­manns, við eft­ir­lit með ráðn­ing­ar­málum innan stjórn­ar­ráðs­ins, að þrátt fyrir skýrar reglur og vilja lög­gjafans sem birt­ist í gild­andi lögum, um að tryggja jafn­ræði og gagn­sæi við með­ferð þess­ara mála, hafi „ítrek­aðar ábend­ingar umboðs­manns um að til­tekin fram­kvæmd sé ekki í sam­ræmi við lög og reglur á þessu sviði í ýmsum til­vikum aðeins leitt til þess að fundin er önnur leið til þess að haga málum á skjön við regl­urnar í stað þess að laga fram­kvæmd­ina að þeim. Þá gætir þess í vax­andi mæli að nýjar laga­heim­ildir til flutn­ings milli emb­ætta og starfa án aug­lýs­ingar séu not­aðar.“

Ekki forsvaranlegt að nota takmarkaðan mannafla

Í ljós þessa gafst umboðs­maður ein­fald­lega upp á frum­kvæð­is­at­hugun emb­ætt­is­ins á fram­kvæmd stjórn­valda rík­is­ins á skyld­unni til að aug­lýsa laus störf nema for­sendur fyrir nýt­ingu und­an­tekn­ing­ar­heim­ilda séu til staðar. Það var til­kynnt í áður­nefndri umfjöllun frá því í fyrra­vor. Ekki væri for­svar­an­legt að nýta tak­mark­aðan mann­afla emb­ætt­is­ins til að ljúka frum­kvæð­is­at­hug­un­inni í ljósi þess að ráða­menn færu hvort eð er ekk­ert eftir skýrum reglum og vilja lög­gjafans í þessum málum.

Umboðs­maður sagði að þau til­mæli sem myndu koma út úr athug­un­inni gætu hvort eð er „vart lotið að öðru en að stjórn­völd fylgi þeim skýru reglum sem þegar gilda um þessi mál en þar reynir fyrst og fremst á vilja þeirra til að haga málum með þeim hætti. “

Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og Bjarna Bene­dikts­syni., fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra var til­kynnt um ákvörð­un­ina.

Sitjandi ríkisstjórn hefur skipað marga ráðuneytisstjóra

Síðan að umfjöllun umboðs­manns birt­ist í apríl 2021 hafa fimm ráðu­neyt­is­stjórar verið skip­aðir. Sá fyrsti, Benedikt Árnason, var skip­aður í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í því sem hét atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið á síð­asta kjör­tíma­bili eftir lög­bundið aug­lýs­inga­ferli. Alls sóttu 13 um starfið og hæf­is­nefnd mat þrjá umsækj­endur hæf­asta til að gegna emb­ætt­inu.

Í fyrra­haust var kosið til þings og sömu flokkar: Sjálf­stæð­is­flokkur, Fram­sókn­ar­flokkur og Vinstri græn, ákváðu í kjöl­far þess að halda áfram stjórn­ar­sam­starfi undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dóttur. Á meðal breyt­inga sem sátt náð­ist um var að fjölga ráð­herrum um tvo, þannig að ráðu­neytin yrðu tólf. Auk þess voru mála­flokkar fluttir á milli ráð­herra þannig að til urðu áður óséðar ráðu­neyt­is­ein­ingar víða innan stjórn­ar­ráðs­ins.

Ráð­herrar í end­ur­nýj­uðu rík­is­stjórn­inni hafa ráðið fjóra ráðu­neyt­is­stjóra. Í einu til­viki var starfið aug­lýst, þegar Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, háskóla- iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, skip­aði Ásdísi Höllu Braga­dóttur, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóra Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Garðabæ, yfir sitt ráðu­neyti. Áður hafði Áslaug Arna þó sett Ásdísi Höllu tíma­bundið til þriggja mán­aða í nýtt emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra innan síns ráðu­neytis. Umboðs­maður Alþingis tók tíma­bundnu skip­un­ina óstinnt upp og óskaði eftir skýr­ingum á henni frá ráð­herra.

Ráðherra braut gegn lögum

Í bréfi Umboðs­­manns Alþingis til Áslaugar Örnu sagði að ekki yrði annað ráð­ið, í ljósi þess að verið væri að setja á fót nýtt ráðu­­neyti, að um nýtt emb­ætti innan ráðu­­neyt­is­ins væri að ræða.

Umboðs­­maður óskaði því eftir upp­­lýs­ingum „um hvort umrætt emb­ætti hafi verið aug­lýst til umsókn­­ar“ og ef svo hafi ekki ver­ið, óskaði hann eftir skýr­ingum frá ráð­herra á því á hvaða laga­grund­velli það hafi verið gert.

Í byrjun mars birti umboðs­maður álit þess efnis að Áslaugu Örnu hefði ekki verið heim­ilt að setja Ásdísi Höllu í emb­ættið án aug­lýs­ing­ar. Ráð­herr­ann hafi því brotið gegn lögum með ákvörðun sinni.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir.

Á nán­ast sama tíma og umboðs­maður var að birta álit sitt var ráðu­neyt­is­stjóra­staðan aug­lýst. Ásdís Halla sótti um var tekin fram yfir aðra umsækj­endur þegar Áslaug Arna ákvað að skipa hana í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í apr­íl. Alls sóttu átta um emb­ætt­ið, fjórir drógu umsókn sína til baka og tveir voru metnir hæf­ast­ir. Á meðal umsækj­enda var Sig­ríður Auð­ur Arn­ar­dóttir, þá ráðu­neyt­is­stjóri í umhverf­is-, orku- og loft­lags­ráðu­­­neyt­inu.

Ekki lagaskilyrði til að halda athugun áfram

Hinir þrír sem hafa verið skip­aðir ráðu­neyt­is­stjórar á þessu ári hafa allir verið fluttir til í starfi. Lilja Alfreðs­dótt­ir, menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra, skip­aði Skúla Egg­ert Þórð­ar­son, þáver­andi rík­is­end­ur­skoð­anda, í það emb­ætti innan síns ráðu­neyti snemma á þessu ári.

Umboðs­maður Alþing­is óskaði eftir skýr­ingum á laga­legum grund­velli fyrir skipan hans og á bréfum hans til ráð­herr­ans mátti merkja að hann átt­aði sig ekki fylli­lega á hvaða laga­legi grund­völlur hafi verið fyrir skip­un­inn­i.

Lilja Alfreðsdóttir. Mynd: RÚV/Skjáskot
Lilja Alfreðs­dóttir. Mynd: RÚV/Skjáskot

Í mars sendi umboðs­maður Lilju bréf þar sem fram kom að athugun hans á skipan þáver­andi rík­­is­end­­ur­­skoð­anda í emb­ætti ráðu­­neyt­is­­stjóra nýs menn­ing­­ar- og við­­skipta­ráðu­­neytis væri lok­ið.

Í bréf­inu sagði meðal ann­­ars að í ljósi aðkomu og afstöðu þings­ins gagn­vart til­færslu Skúla Egg­erts úr emb­ætti rík­is­end­ur­skoð­anda yrði ekki hjá því kom­ist að líta svo á að það félli utan við starfs­­svið umboðs­­manns, þar sem það taki ekki til starfa Alþing­is, að fjalla um ákvörðun ráð­herra að skipa við­kom­andi með þeim hætti sem gert var og án und­an­­geng­innar aug­lýs­ing­­ar. Ekki væri því laga­skil­yrði til þess að emb­ætti umboðs­­manns geti haldið athugun sinni áfram.

Umboðs­­maður tók þó fram að með nið­­ur­­stöð­unni hefði engin efn­is­­leg afstaða verið tekin til atvika máls­ins eða þeirra skýr­inga sem hefðu verið færðar fram vegna þess.

Tveir fluttir til í sumar

Í júní var greint frá því að Páll Magn­ús­son, sem var skip­aður ráðu­neyt­is­stjóri í mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu eftir afar umdeilt ráðn­ing­ar­ferli þar sem jafn­rétt­islög voru brotin, hefði verið færður til í starfi og færi til starfa hjá fasta­nefnd Íslands í Genf og muni þar starfa á sviði mál­efna barna. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barna­mála­ráð­herra, skip­aði í hans stað Ernu Kristínu Blöndal, skrif­stofu­stjóra í ráðu­neyt­inu. Starfið var ekki aug­lýst.

Í byrjun viku var svo greint frá því að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son hefði skipað Stefán Guð­munds­son, sem gegnt hefur emb­ætti skrif­stofu­stjóra á skrif­stofu fjár­mála og rekstrar í umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­inu, sem ráðu­neyt­is­stjóra frá og með 1. sept­em­ber næst­kom­andi.

Staðan var ekki aug­lýst heldur var Stefán fluttur í emb­ættið á grund­velli laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins þar sem kveðið er á um heim­ild til flutn­ings emb­ætt­is­manna rík­is­ins milli emb­ætta.

Áður­nefnd Sig­ríður Auður Arn­ar­dótt­ir, sem hafði gegnt emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í ráðu­neyt­inu frá árinu 2014 og sótt um annað ráðu­neyt­is­stjóra­starf fyrr á árinu, hefur ráðið sig til Orku­veitu Reykja­víkur sem stjórn­andi á nýju fagsviði Sam­hæf­ingar og stjórn­sýslu sem heyrir undir for­stjóra.

Sjö af tólf fluttir í embætti

Þegar horft er á alla þá tólf ein­stak­linga sem gegna emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra liggur fyrir að sjö þeirra hafa verið fluttir til í starfi án þess að ráðu­neyt­is­stjóra­staðan hafi verið aug­lýst, líkt og lög gera ráð fyrir. Fimm hafa verið ráðnir eftir lög­bundið aug­lýs­inga­ferli þar sem hæf­is­nefnd hefur metið umsækj­endur um starfið og raðað þeim upp eftir hæfi.

Af öllum ráðu­neyt­is­stjórum hefur Guð­mundur Árnason, ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, setið lengst. Hann hefur verið ráðu­neyt­is­stjóri frá því í mars 2003 og í þessu valda­mikla emb­ætti frá árinu 2009, þegar hann var færður tíma­bundið úr emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í mennta­mála­ráðu­neyt­inu í júní það ár og Baldur Guð­laugs­son færður í hina átt­ina.

Guð­mundur átti upp­haf­lega að vera settur í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í fjár­mála­ráðu­neyt­inu til loka árs 2009 en eftir að Baldur óskaði eftir starfs­lokum vegna þess að hann var til rann­sóknar fyrir inn­herja­svik, sem hann hlaut síðar dóm fyrir, hélt Guð­mundur ein­fald­lega áfram í fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Hann var fluttur í emb­ættið án þess að það væri aug­lýst laust til umsóknar.

Auglýst árið 2010 og 2017

Sú sem hefur setið næst lengst sem ráðu­neyt­is­stjóri er Ragn­hildur Hjalta­dóttir, ráðu­neyt­is­stjóri í inn­við­a­ráðu­neyt­inu. Hún var skipuð ráðu­neyt­is­stjóri í sam­göngu­ráðu­neyt­inu frá og með 1. júní 2003. Haustið 2010 var ráðu­neyt­is­stjóra­staða í nýju inn­við­a­ráðu­neyti, sem varð til við sam­ein­ingu dóms­mála- og mann­réttinda­ráðu­neytis og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytis, aug­lýst laus til umsóknar og sóttu þrettán um. Ragn­hildur varð hlut­skörpust umsækj­enda og hefur verið ráðu­neyt­is­stjóri síðan.

Í maí 2017 var Haukur Guð­munds­son skip­aður ráðu­neyt­is­stjóri í dóms­mála­ráðu­neyt­inu í kjöl­far þess að emb­ættið var aug­lýst laust til umsóknar. Alls sóttu tólf um og þrír voru metnir hæf­astir af hæf­is­nefnd, þar á meðal Haukur.

Undantekning frekar en regla að auglýsa hjá sitjandi ríkisstjórn

Síðan að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur tók við völdum seint á árinu 2017 hafa níu ráðu­neyt­is­stjórar verið skip­aðir. Þrír þeirra hafa verið ráðnir eftir lög­bundið aug­lýs­inga­ferli en sex fluttir til í starfi. Líkt og áður sagði hafa fimm þeirra verið skip­aðir síð­asta tæpa eina og hálfa árið. Hinir fjórir voru skip­aðir fyrr á síð­asta kjör­tíma­bili.

Í lok árs 2018 skip­aði Ásmundur Einar Daðason þáver­andi for­stjóra Vinnu­mála­stofn­unar, Gissur Pét­urs­son, í emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra í nýju félags- og barna­mála­ráðu­neyti. Hann hóf störf í byrjun árs 2019. Starfið var ekki aug­lýst.

Í mars 2019 skip­aði Svandís Svav­ars­dóttir, þá heil­brigð­is­ráð­herra, Ástu Valdi­mars­dóttur sem ráðu­neyt­is­stjóra. Hún var á meðal fjög­urra umsækj­enda sem lög­skipuð hæf­is­nefnd mat hæf­asta til að gegna emb­ætt­inu.

Í nóv­em­ber 2019 var greint frá því að Ragn­hildur Arn­ljóts­dótt­ir, ráðu­neyt­is­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, myndi taka við nýju emb­ætti í utan­rík­is­þjón­ust­unni. Í hennar stað skip­aði Katrín Jak­obs­dóttir þáver­andi rík­is­sátta­semj­ara, Bryndísi Hlöðvers­dóttur. Hún hóf störf í byrjun árs 2020. Staðan var ekki aug­lýst.

Í ágúst 2020 var greint frá því að Sturla Sig­ur­jóns­son, þáver­andi ráðu­neyt­is­stjóri í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, hefði verið færður til og yrði næsti sendi­herra Íslands í London. Við starfi hans tók Martin Eyj­ólfs­son, sem hafði verið skrif­stofu­stjóri alþjóða- og þró­un­ar­skrif­stofu ráðu­neyt­is­ins. Embættið var ekki aug­lýst laust til umsóknar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár